Arion banki: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun
Í viku 44 keypti Arion banki eigin hluti á Nasdaq á Íslandi og sænsk heimildarskírteini (SDR) á Nasdaq í Stokkhólmi. Sjá frekari upplýsingar hér að neðan.Endurkaup á hlutum á Nasdaq Ísland voru eftirfarandi:Endurkaup á heimildarskírteinum á Nasdaq í Stokkhólmi voru eftirfarandi:
Um er að ræða viðskipti í samræmi við endurkaupaáætlun bankans sem var hrint í framkvæmd þann 31. október sl., sbr. tilkynningu til beggja kauphalla þann 31 október 2019.Arion banki átti fyrir viðskiptin 299.899 eigin hluti og á bankinn því 799.899 eigin hluti og 73.814 heimildarskírteini samkvæmt áætluninni eða sem nemur samtals 0,03% af útgefnum hlutum í félaginu.Samkvæmt endurkaupaáætlunum bankans verða að hámarki keyptir 59.000.000 hluti/SDR, sem samsvarar 3,2% af útgefnum hlutum í bankanum. Gert er ráð fyrir að kaupa allt að 20.650.000 SDR í Svíþjóð, sem samsvarar 1,14% af útgefnum hlutum og allt að 38.350.000 hlutum á Íslandi, sem samsvarar 2,11% af útgefnum hlutum. Fjárhæð endurkaupanna skal að hámarki nema 1.575.000.000 kr. í Svíþjóð og 2.925.000.000 kr. á Íslandi (samtals 4,5 milljarðar króna). Framkvæmd endurkaupaáætlunar lýkur þegar öðru hvoru framangreindu er náð eða í síðasta lagi 17. mars 2020. Bankastjóri Arion banka hefur heimild til að stöðva áætlunina hvenær sem er á tímabilinu.Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við lög og reglur á Íslandi og í Svíþjóð, þ.á m. lög um hlutafélög nr. 2/1995, lög um verðbréfaviðskipti nr. 108/2007, viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005, Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik (MAR) nr. 596/2014, framseld reglugerð framkvæmdastjórnar ESB (EU) 2016/1052 frá 8 mars 2016.Nánari upplýsingar veitir Theodór Friðbertsson, forstöðumaður fjárfestatengsla Arion banka, ir@arionbanki.is, sími 856 6760.