VÍS: Samsett hlutfall og ávöxtun fjáreigna í október 2019
Samsett hlutfall* var 103,9% í október og það sem af er ári er það 99,8%. Samsett hlutfall síðustu 12 mánaða er 99,9%.Ávöxtun fjárfestingaeigna VÍS í október var 0,7% en ávöxtun frá áramótum er 8,3%.VÍS greiddi viðskiptavinum sínum tæplega 1,7 milljarð króna í tjónabætur** í október og hefur greitt viðskiptavinum tæplega 14,3 milljarða króna í tjónabætur það sem af er ári.*Samsett hlutfall er tjónakostnaður, endurtryggingakostnaður og rekstrarkostnaður af vátryggingahluta sem hlutfall af iðgjöldum.
**Hafa skal í huga að tjónakostnaður tryggingafélaga getur sveiflast mjög á milli mánaða.Nánari upplýsingar eru veittar í netfanginu fjarfestatengsl@vis.is.