VÍS: Samsett hlutfall og ávöxtun fjáreigna ágúst 2020

Samsett hlutfall* í ágúst 2020 var 93,1% og það sem af er ári er 108,9%. Samsett hlutfall síðustu 12 mánaða er 104,6%. Við sjáum áfram merki um lækkun á tíðni tjóna sem endurspeglast í samsettu hlutfalli í ágúst. Ávöxtun fjárfestingaeigna í ágúst var 1,1% en ávöxtun til loka ágúst frá áramótum var 6,0%. *Samsett hlutfall er tjónakostnaður, endurtryggingakostnaður og rekstrarkostnaður af vátryggingastarfsemi sem hlutfall af iðgjöldum tímabilsins samkvæmt leiðbeinandi tilmælum Seðlabanka Íslands, fjármálaeftirlits nr. 1/2020.