VÍS: Framboð til stjórnar og tilnefningarnefndar VÍS á aðalfundi þann 19. mars 2020
Aðalfundur Vátryggingafélags Íslands hf. verður haldinn fimmtudaginn 19. mars 2020 kl. 16:00 í höfuðstöðvum félagsins, Ármúla 3, 108 Reykjavík. Athygli er vakin á því að jafnframt er gefinn kostur á rafrænni fjarþátttöku á fundinum. Framboðsfrestur vegna stjórnar og tilnefningarnefndar Vátryggingafélag Íslands hf. rann út þann 14. mars 2020 kl. 16:00.Meðfylgjandi eru upplýsingar um þá aðila sem gefið hafa kost á sér til setu í stjórn og varstjórn annarsvegar, og í tilnefninganefnd hins vegar.Er það mat stjórnar að öll framboð séu gild sbr. 63. gr. a. hlutafélagalaga nr. 2/1995. Þar sem þrír einstaklingar hafa boðið sig fram til setu í tilnefningarnefnd er ljóst að sjálfkjörið er í nefndina.Önnur fundargögn tengd hluthafafundi má nálgast á vef félagsins: https://vis.is/vis/fjarfestar/hluthafafundur/ Reykjavík, 14. mars 2020. Stjórn Vátryggingafélags Íslands hf.Attachments20.03.14 Framboð til tilnefningarnefndar VÍS 202020.03.14 Framboð til stjórnar VÍS 2020