VÍS: Framboð til stjórnar og tilnefningarnefndar VÍS

Aðalfundur Vátryggingafélags Íslands hf. verður haldinn föstudaginn 19. mars 2021 kl. 16:00 í höfuðstöðvum félagsins, Ármúla 3, 108 Reykjavík, auk þess sem gefinn er kostur á rafrænni þátttöku á fundinum.Framboðsfrestur vegna stjórnar og tilnefningarnefndar Vátryggingafélag Íslands hf. rann út þann 14. mars 2021 kl. 16:00.Meðfylgjandi eru upplýsingar um þá aðila sem gefið hafa kost á sér til setu í stjórn og varastjórn annars vegar, og í tilnefninganefnd hins vegar.Er það mat stjórnar að öll framboð séu gild sbr. 63. gr. a. hlutafélagalaga nr. 2/1995. Þar sem þrír einstaklingar hafa boðið sig fram til setu í tilnefningarnefnd er ljóst að sjálfkjörið er í nefndina.Önnur fundargögn tengd hluthafafundi má nálgast á vef félagsins: https://vis.is/hluthafafundir/. Reykjavík, 15. mars 2021. Stjórn Vátryggingafélags Íslands hf.AttachmentsFramboð til tilnefninganefndar VÍS 2021Framboð til stjórnar VÍS 2021