Skip to main content

Sveitarfélagið Árborg – Ársreikningur 2025.

Sveitarfélagið Árborg – Ársreikningur 2025

Ársreikningur Sveitarfélagsins Árborgar fyrir árið 2025 var lagður fram í bæjarráði og til fyrri umræðu á fundi bæjarstjórnar í dag miðvikudaginn 22.04.2026.  

Rekstrarniðurstaða Sveitarfélagsins Árborg samkvæmt samanteknum rekstrarreikningi A- og B- hluta var jákvæð um 1.496,7 millj.kr. en samkvæmt samþykktri fjárhagsáætlun með viðaukum fyrir árið 2025 var gert ráð fyrir 67 millj.kr. jákvæðri rekstrarniðurstöðu.  

Tekjur ársins af A- og B-hluta námu alls 22.818 millj.kr., launakostnaður 11,4 millj.kr., hækkun lífeyrisskuldbindinga nam 566,3 millj.kr.. Annar rekstrarkostnaður var 6.894 millj.kr. og nemur framlegð því 3.976,6 millj.kr. Afskriftir voru 1.024,5 millj.kr.. Fjármunatekjur, fjármagnsgjöld námu 1.469 millj.kr. og var rekstrarniðurstaða ársins því jákvæð um 1.496,7 millj.kr. Veltufé frá rekstri var 3.645,8 millj.kr.  

Skuldir við lánastofnanir lækka í heildina milli ára en heildarskuldir og skuldbindingar aukast lítillega vegna hækkunar lífeyrisskuldbindinga. Skuldaviðmið lækkar í 108,8% sem er frábær árangur og er Árborg komið vel undir lögbundið hámark sem er 150% samkvæmt reglugerð nr. 502/2012 

Veltufé frá rekstri helst stöðugt milli ára og er um 3.646 millj.kr. og handbært fé eykst um tæplega 1.000 millj.kr. milli ára og endar í 3.287 millj.kr. í  A- og B-hluta. 

Áframhaldandi vöxtur og hröð íbúafjölgun einkenndi árið 2025 eins og undanfarin ár en þann 1. janúar 2026 voru íbúar sveitarfélagsins orðnir 12.671, samkvæmt tölum Hagstofunnar og fjölgaði um 697 frá fyrra ári eða 5%. Sveitarfélagið Árborg er áfram áttunda fjölmennasta sveitarfélag landsins.   

Lántaka ársins var 1.450 millj.kr. Er þar einungis um að ræða lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga. Minni lántaka í skammtíma- og langtímalánum ásamt lækkandi verðbólgu og bættum rekstri hefur lækkað fjármagnsgjöld verulega milli ára. 

Niðurstaða ársreikningsins er mjög ánægjuleg og vil ég óska íbúum, starfsmönnum og kjörnum fulltrúum til hamingju með árangurinn. Það er ánægjulegt að erfiðar aðgerðir undanfarin þrjú ár sem hafa verið þungar fyrir okkur íbúa skili árangri á skemmri tíma en áætlað var. Lausafjárstaða sveitarfélagsins styrkist og skuldaviðmið lækkar milli ára þrátt fyrir umfangsmiklar fjárfestingar og viðhald innviða.  

Stefna bæjarstjórnar Árborgar var að taka á rekstrarvandanum með ábyrgum hætti og það er að takast. Við munum áfram sýna ábyrgð í rekstrinum með það að markmiði lækka álögur á íbúa, t.a.m. fasteignagjöld. Íbúar eiga alltaf að njóta ávinningsins af betri rekstri m.a. í formi lægri gjalda og álaga.” sagði Bragi Bjarnason, bæjarstjóri af þessu tilefni.   

Attachment

Disclaimer & Cookie Notice

Welcome to GOLDEA services for Professionals

Before you continue, please confirm the following:

Professional advisers only

I am a professional adviser and would like to visit the GOLDEA CAPITAL for Professionals website.

Important Notice for Investors:

The services and products offered by Goldalea Capital Ltd. are intended exclusively for professional market participants as defined by applicable laws and regulations. This typically includes institutional investors, qualified investors, and high-net-worth individuals who have sufficient knowledge, experience, resources, and independence to assess the risks of trading on their own.

No Investment Advice:

The information, analyses, and market data provided are for general information purposes only and do not constitute individual investment advice. They should not be construed as a basis for investment decisions and do not take into account the specific investment objectives, financial situation, or individual needs of any recipient.

High Risks:

Trading in financial instruments is associated with significant risks and may result in the complete loss of the invested capital. Goldalea Capital Ltd. accepts no liability for losses incurred as a result of the use of the information provided or the execution of transactions.

Sole Responsibility:

The decision to invest or not to invest is solely the responsibility of the investor. Investors should obtain comprehensive information about the risks involved before making any investment decision and, if necessary, seek independent advice.

No Guarantees:

Goldalea Capital Ltd. makes no warranties or representations as to the accuracy, completeness, or timeliness of the information provided. Markets are subject to constant change, and past performance is not a reliable indicator of future results.

Regional Restrictions:

The services offered by Goldalea Capital Ltd. may not be available to all persons or in all countries. It is the responsibility of the investor to ensure that they are authorized to use the services offered.

Please note: This disclaimer is for general information purposes only and does not replace individual legal or tax advice.