Skip to main content

Skeljungur hf.: Framboð til stjórnar og tilnefningarnefndar – Aðalfundur 5. mars 2020

Aðalfundur Skeljungs hf. verður haldinn þann 5. mars 2020 kl. 16.00 í höfuðstöðvum Skeljungs, Borgartúni 26, 105 Reykjavík.Framboðsfrestur til stjórnar og tilnefningarnefndar Skeljungs hf. er runninn út.Eftirtaldir aðilar hafa gefið kost á sér í stjórn félagsins:Birna Ósk Einarsdóttir
Dagný Halldórsdóttir
Elín Jónsdóttir
Jón Ásgeir Jóhannesson
Jón Gunnar Borgþórsson
Már Wolfgang Mixa
Þórarinn Arnar Sævarsson

Nánari upplýsingar um frambjóðendur er að finna í viðhengi og í skýrslu tilnefningarnefndar á heimasíðu Skeljungs: https://www.skeljungur.is/hluthafafundur-2020
Vakin er athygli á því að einn frambjóðandi hefur dregið framboð sitt til baka síðan skýrsla nefndarinnar var birt.Samkvæmt samþykktum félagsins skal stjórn þess skipuð fimm einstaklingum og skal hlutfall hvors kyns innan stjórnar ekki vera lægra en 40%.Stjórn Skeljungs hf. barst krafa um að beitt verði margfeldiskosningu við kjör stjórnar Skeljungs hf. Krafan barst stjórn innan tilskilins frests og barst frá hluthöfum sem hafa yfir að ráða meira en 1/10 hlutafjárins, sbr. 7. mgr. 63. gr. laga um hlutafélög nr. 2/1995. Margfeldiskosningu verður því beitt við stjórnarkjörið á fundinum.Margfeldiskosning fer fram með eftirfarandi hætti: Kosið skal á milli einstaklinga. Gildi hvers atkvæðis skal margfaldað með fjölda þeirra stjórnarmanna sem kjósa skal og má hluthafi skipta atkvæðamagni sínu, þannig reiknuðu, í hverjum þeim hlutföllum, sem hann sjálfur kýs, á jafnmarga menn og kjósa skal eða færri. Ef ekki er á atkvæðaseðli getið skiptingar atkvæða á milli þeirra sem þau eru greidd skal þeim skipt að jöfnu. Framboðsfrestur til setu í tilnefningarnefnd félagsins er einnig runninn út. Eftirfarandi einstaklingar eru í framboði til tilnefningarnefndar:Katrín S. Óladóttir
Sigurður Kári Árnason
Samkvæmt starfsreglum tilnefningarnefndar skal hluthafafundur kjósa tvo nefndarmenn en nýkjörin stjórn félagsins skipa einn úr stjórn í nefndina í kjölfar aðalfundar. Katrín og Sigurður verða því sjálfkjörin til setu í nefndinni. Sjá nánari upplýsingar um frambjóðendur í viðhengi.Öll fundargögn má finna á heimasíðu félagsins: https://www.skeljungur.is/hluthafafundur-2020Nánari upplýsingar veitir Árni Pétur Jónsson, forstjóri, fjarfestar@skeljungur.is.Skeljungur er orkufyrirtæki sem selur vörur og þjónustu á Íslandi, í Færeyjum og á Norður-Atlantshafinu. Meginstarfsemi félagsins er innflutningur, birgðahald, sala og dreifing á eldsneyti og eldsneytistengdum vörum og smásala. Félagið starfrækir 76 eldsneytisstöðvar og 6 birgðastöðvar á Íslandi og í Færeyjum. Auk þess selur félagið áburð og efnavörur á Íslandi og rekur verslanir og þjónustar og selur olíu til húshitunar í Færeyjum. Viðskiptavinir Skeljungs spanna frá einstaklingum til fyrirtækja, í sjávarútvegi, landbúnaði, flutningum, flugi og til verktaka. Starfsemin er rekin undir merkjunum Skeljungur, Orkan, Kvikk og Magn. Meginmarkmið Skeljungs er að þjóna orkuþörf einstaklinga og fyrirtækja á hagkvæman og öruggan máta í sátt við umhverfi sitt.www.skeljungur.ishttps://www.linkedin.com/company/skeljungur-hf/  ViðhengiFramboð til stjórnar og tilnefningarnefndar – Aðalfundur 5. mars 2020

Disclaimer & Cookie Notice

Welcome to GOLDEA services for Professionals

Before you continue, please confirm the following:

Professional advisers only

I am a professional adviser and would like to visit the GOLDEA CAPITAL for Professionals website.

Important Notice for Investors:

The services and products offered by Goldalea Capital Ltd. are intended exclusively for professional market participants as defined by applicable laws and regulations. This typically includes institutional investors, qualified investors, and high-net-worth individuals who have sufficient knowledge, experience, resources, and independence to assess the risks of trading on their own.

No Investment Advice:

The information, analyses, and market data provided are for general information purposes only and do not constitute individual investment advice. They should not be construed as a basis for investment decisions and do not take into account the specific investment objectives, financial situation, or individual needs of any recipient.

High Risks:

Trading in financial instruments is associated with significant risks and may result in the complete loss of the invested capital. Goldalea Capital Ltd. accepts no liability for losses incurred as a result of the use of the information provided or the execution of transactions.

Sole Responsibility:

The decision to invest or not to invest is solely the responsibility of the investor. Investors should obtain comprehensive information about the risks involved before making any investment decision and, if necessary, seek independent advice.

No Guarantees:

Goldalea Capital Ltd. makes no warranties or representations as to the accuracy, completeness, or timeliness of the information provided. Markets are subject to constant change, and past performance is not a reliable indicator of future results.

Regional Restrictions:

The services offered by Goldalea Capital Ltd. may not be available to all persons or in all countries. It is the responsibility of the investor to ensure that they are authorized to use the services offered.

Please note: This disclaimer is for general information purposes only and does not replace individual legal or tax advice.