Síminn hf. – Niðurstaða hluthafafundar – Ný stjórn
Niðurstaða hluthafafundar Símans hf. sem haldinn var fimmtudaginn 21. nóvember 2019 kl. 10. í höfuðstöðvum félagsins.Tillaga um að afturkalla umboð stjórnarmanna, sbr. 1. mgr. 64. gr. laga nr. 2/1995 um hlutafélög.Tillagan var samþykkt.Stjórnarkjör skv. grein 15.1 í samþykktum félagsins.Eftirtaldir aðilar voru kjörnir í stjórn félagsins:Bjarni Þorvarðarson
Helga Valfells
Jón Sigurðsson
Kolbeinn Árnason
Sylvía Kristín ÓlafsdóttirÞeir fimm aðilar sem flest atkvæði fengu teljast réttkjörnir til stjórnarsetu í Símanum hf. til næsta aðalfundar.
Staðfesting á ákvörðun aðalfundar dags. 21. mars 2019 varðandi stjórnarkjör og breytingar á viðauka við samþykktir. Ákvarðanir aðalfundar 21. mars 2019 voru staðfestar.Ekki voru fleiri mál á dagskrá fundarins.