Rekstrarhagnaður Reita 7.672 m.kr. á árinu 2019

Stjórn Reita fasteignafélags hf. hefur samþykkt ársreikning ársins 2019. Helstu lykiltölur reikningsins eru: Guðjón Auðunsson, forstjóri:
„Rekstur Reita á árinu 2019 var ágætur þrátt fyrir nokkurn mótbyr í efnahagslífinu. Félagið naut góðs af lækkandi vöxtum og endurfjármagnaði eldri lán með nýrri skuldabréfaútgáfu fyrir rúma 10 milljarða króna. Stærstu verkefni ársins fólust í aðlögun núverandi húsnæðis í eignasafni Reita að breyttum þörfum langtímaviðskiptavina.Um mitt ár 2019 fékk Landspítalinn afhent endurnýjað húsnæði að Skaftahlíð 24. Þar er um að ræða um 5.000 fermetra í tveimur byggingum. Húsnæðið var klæðskerasniðið að starfsemi höfuðstöðva spítalans sem áður voru staðsettar í annarri byggingu Reita, Eiríksgötu 5, en sú bygging fær senn nýtt hlutverk eftir gagngerar endurbætur sem ráðist verður í á árinu 2020. Sjúkraþjálfun Íslands, sem hafði verið með aðsetur í Orkuhúsinu um árabil, opnaði á árinu nýja starfsstöð á þriðju hæð í Kringlunni og fékk þar endurnýjað húsnæði sérsniðið að sínum þörfum. Á dögunum var tilkynnt um fyrirhugaða opnun nýrrar World Class stöðvar í Kringlunni haustið 2020.Undir lok árs voru tilkynnt áform um að breyta Laugavegi 176, Gamla sjónvarpshúsinu, í nýtt Hyatt Centric hótel. Áætlað er að framkvæmdir hefjist á reitnum í ársbyrjun 2021 og að hótelið opni árið 2022.
Undirbúningur þróunar á Orkureit, Kringlusvæðinu og í landi Blikastaða í Mosfellsbæ gengur vel en nánar er fjallað um þróunarverkefnin í ársskýrslu Reita á www.reitir.is/2019 og gerð verður ítarlegri grein fyrir verkefnunum á aðalfundi félagsins 10. mars næstkomandi.“Endurkaup
Stjórn félagsins hefur tekið ákvörðun um framkvæmd endurkaupaáætlunar með það að markmiði að lækka útgefið hlutafé. Áætlað er að kaupa allt að 20 milljónir hluta sem jafngildir 3,0% af útistandandi hlutafé, þó þannig að fjárhæð endurkaupanna verði aldrei meiri en 1.500 milljónir króna.Stjórn félagsins stefnir að framkvæmd annarrar endurkaupaáætlunar allt að sama umfangi, í kjölfar þeirrar sem hefst fimmtudaginn 20. febrúar næstkomandi. Endurkaup ársins geta því orðið umtalsvert meiri en verið hefur á síðustu árum en ráðast þó af tækifærum á markaði með fasteignir.
Horfur ársins 2020
Áætlað er að tekjur ársins 2020 verði 11.500-11.650 millj. kr. og að rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu verði 7.600 – 7.750 millj. kr.Viðhengireitir-fasteignafelag-31.12.2019-kynningreitir-fasteignafelag-31.12.2019-arsreikningur