Skip to main content

REITIR: Uppgjör fyrstu þriggja mánaða ársins 2025

Góður tekjuvöxtur í kjölfar kröftugrar fjárfestingar á liðnu ári 

Rekstur Reita á fyrstu þremur mánuðum ársins 2025 var góður og í takti við útgefnar horfur um afkomu. Rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu nam 2.801 m.kr. og eykst um 187 m.kr milli ára eða 10,2%. Tekjur fjórðungsins voru 4.305 m.kr. sem er aukning um 384 m.kr. eða 9,8% og er sá vöxtur drifinn af verulegri fjárfestingu félagsins á liðnu ári, þar á meðal í markvissum eignakaupum, auk verðlagsbreytinga leigusamninga.  

Félagið fjárfesti fyrir um 3 ma.kr. á fjórðungnum og hefur fjárfest fyrir 5,2 ma.kr. það sem af er af ári. Stærstu viðskiptin eru kaup á 201 Hótel í Hlíðarsmára 5-7 í Kópavogi sem tilkynnt var um í mars en væntingar eru um að viðskiptin klárist í sumar. Fjárfestingin samanstendur af þannig af eignakaupum sem skila tekjuaukningu nær samstundis, endurbóta- og framkvæmdaverkefnum innan eignasafnsins, og þróunarverkefnum sem skila vexti til lengri tíma.  

Markviss framgangur vaxtarstefnu 

Góður framgangur hefur verið í öllum fjórum stoðum vaxtarstefnu félagsins. Fjárfesting í ýmsum verkefnum og eignakaup styðja við markmið um vöxt og aukna arðsemi. Þróunarverkefnum félagsins að Korputúni og á Kringlureit miðar vel og mörg stór uppbyggingarverkefni félagsins eru á lokametrunum. Félagið áætlar að við lok ársins 2028 hafi fjárfesting fyrir um 15 milljarða í þróunar- og uppbyggingarverkefnum félagsins skilað félaginu tekjuaukningu upp á 2.550 m.kr.  

Framkvæmdir eru á næsta leiti á Kringlureit þar sem nýtt borgarhverfi rís. Nýtt deiliskipulag fyrir fyrsta áfanga reitsins var auglýst í lok apríl og rennur umsagnafrestur út 9. júní, en sá áfangi nær til suðurhluta reitsins og telur um 420 íbúðir. Tillaga að íbúða- og skrifstofuuppbyggingu í öðrum áfanga liggur fyrir, þar sem gert er ráð fyrir 15.000 fm. af íbúðarhúsnæði og 2.000-3.000 fm. af skrifstofum. Framkvæmdir á um 170 íbúðum á A reit í fyrsta áfanga hefjast eins fljótt og skipulagsyfirvöld heimila.  

Á Korputúni eru framkvæmdir þegar hafnar. Félagið seldi A og B reiti til JYSK í apríl og eru framkvæmdir á þeirra vegum hafnar.  Jákvæð framvinda í uppbyggingu Korputúns skilar matshækkun á reitnum upp á 1,1 ma.kr. í uppgjör fjórðungsins. Reitir hafa lagt fram nýja tillögu fyrir neðri hluta reitsins næst Korpu um uppbyggingu 60+ íbúða, um 108 talsins, og lífsgæðakjarna og eru fyrstu viðbrögð skipulagsnefndar Mosfellsbæjar jákvæð. Tillagan hentar vel þeirri þróun sem á sér stað í samfélaginu um breytta aldurssamsetningu og er liður í að mæta vaxandi spurn eftir húsnæði af fjölbreyttum toga fyrir eldri borgara. 

Framkvæmdar- og endurbótaverkefnum við Suðurlandsbraut 34, þar Travel Connect mun flytja starfsemi sína, og við Ármúla 7-9, þar sem Klíníkin er til húsa, er að ljúka og eru þessir leigutakar að flytja inn þessa dagana. Uppbygging Hyatt hótels við Laugaveg 176 miðar vel og búið er að framkvæmda eða semja um framkvæmdir á helmingi verkefnisins. Félagið hefur einnig lagt inn umsókn fyrir stækkun sjöundu hæðar hótelsins til þess að fjölga herbergjum.  

Nýir leigusamningar til 17 ára vegna fasteigna sem hýsa hótelin Hilton Nordica og Reykjavík Natura voru undirritaðir á fjórðungnum. Eins og tilkynnt var um ákvað núverandi leigutaki að nýta forleigurétt sinn vegna samningana. Áætlað er að aukning tekna og rekstrarhagnaðar vegna leigusamninganna sé um 620 m.kr. á ársgrundvelli fyrstu tvö ár leigutímans en um 720 m.kr. eftir það. Gert er ráð fyrir að fjárfesta um 3 milljörðum í endurbótum á hótelunum næstu árin. 

   

Guðni Aðalsteinsson, forstjóri: 

„Árið fer vel af stað hjá okkur. Markviss fjárfesting síðasta árs veitir okkur meðbyr og styður við tekjuvöxt og aukningu rekstrarhagnaðar á fyrsta ársfjórðungi. Vaxtarstefna félagsins er leiðarljósi í allri starfsemi þess og það er góður taktur í verkefnum þvert á vaxtarstoðir Reita sem eru að kaupa, byggja og þróa fasteignir. Mikilvægir áfangar eru í höfn snemma árs, stórum framkvæmdaverkefnum er lokið og það er ánægjulegt að sjá nýja leigutaka hefja sína starfsemi í húsnæði sem er í hæsta gæðaflokki og sérsniðið að þeirra þörfum. Gífurleg undirbúnings- og skipulagsvinna undanfarinna ára er farin að skila sér í lykil þróunarverkefnum, þar á meðal Korputúni og á Kringlureit þar sem uppbygging er hafin eða áætlað er að hefjist bráðlega. Umfangsmiklum framkvæmdaverkefnum miðar vel í samræmi við áætlanir, þar á meðal uppbygging á Hyatt hóteli.  

Nú þegar ár er liðið frá því að við mörkuðum og kynntum nýja vaxtarstefnu félagsins höfum við fjárfest fyrir um 23,3 milljarða sem nálgast fljótlega fjárfestingarmarkmið okkar fyrir 2024 og 2025 sem eru 25 milljarðar. Fjárfestingin skilar sér í vexti til skemmri og lengri tíma og styrkir enn frekar leiðandi stöðu Reita á markaði.  

Við erum einnig stolt af því að leggja mikilvægt framlag til samfélagsins með uppbyggingu og þróun innviða á borð við hjúkrunarheimili sem brýn nauðsyn er á, og fjölgun íbúða, ekki síst smærri og hagkvæmra íbúða sem mikil eftirspurn er eftir.“ 


Uppgjör fyrstu þrjá mánuði ársins 

Lykiltölur uppgjörsins eru eftirfarandi: 

Lykiltölur rekstrar2025 1F2024 1F
Leigutekjur4.3053.921
Rekstrarkostnaður fjárfestingareigna-1.245-1.084
Stjórnunarkostnaður-259-296
Rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu2.8012.541
Matsbreyting fjárfestingareigna1.1393.367
Hrein fjármagnsgjöld2.4562.611
Hagnaður og heildarhagnaður1.0942.536
Hagnaður á hlut1,63,5
   
Lykiltölur efnahags31.3 202531.12 2024
Fjárfestingareignir230.496226.396
Handbært og bundið fé1.5702.337
Heildareignir235.890231.369
Eigið fé73.07272.429
Vaxtaberandi skuldir131.595128.840
Eiginfjárhlutfall31,0%31,3%
Skuldsetningarhlutfall58,8%58,6%
   
Lykilhlutföll2025 1F2024 1F
Nýtingarhlutfall allra eigna (tekjuvegið)94,1%94,6%
Arðsemi tekjuberandi eigna5,8%5,9%
Rekstrarhagnaðarhlutfall61,2%61,3%
Stjórnunarkostnaðarhlutfall5,7%7,1%

Horfur ársins

Áfram er gert ráð fyrir að tekjur ársins nemi 17.700-18.000 m.kr. og að rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu verði 11.750-12.000 m.kr. Afkoma fyrsta ársfjórðungs er í takti við áætlun ársins og horfur um verðbólgu virðast í góðu samræmi við áætlun Nýir samningar um Hilton Nordica og Reykjavik Natura og kaup á 201 Hótel færa tekjur og rekstrarhagnað nærri efri mörkum á því bili sem gefið var út.

Nánari upplýsingar og kynningarfundur

Reitir bjóða fjárfestum og markaðsaðilum á kynningarfund þar sem Guðni Aðalsteinsson, forstjóri og Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, munu kynna uppgjörið.

Fundurinn verður haldinn kl. 8:30 á morgun, föstudaginn 16. maí, á skrifstofu Reita, Kringlunni 4-12, 103 Reykjavík. Fundinum er jafnframt streymt í gegnum netið á slóðinni https://vimeo.com/event/5131532/embed/8582d29558/interaction

Fjárfestar sem fylgjast með streymi geta sent spurningar sem óskað er eftir að verði teknar fyrir á fundinum á netfangið fjarfestatengsl@reitir.is.

Kynningarefni fundarins er aðgengilegt á fjárfestasíðu Reita www.reitir.is/fjarfestar.

Um Reiti fasteignafélag

Reitir er leiðandi fyrirtæki í fasteignaþróun ásamt rekstri og eignarhaldi atvinnuhúsnæðis. Vöxtur Reita byggir á þróun og fjárfestingu í borgarinnviðum sem styðja við sjálfbært samfélag.

Innan eignasafns Reita eru um 460 þúsund fermetrar atvinnuhúsnæðis sem hýsir fjölbreytta atvinnustarfsemi og ríkisstofnanir. Gagnkvæmur ávinningur Reita, samstarfsaðila og samfélags er lykilþáttur í starfsemi Reita.

Fyrirtækið er almenningshlutafélag skráð í Kauphöll síðan 2015. Eigendur eru að stærstum hluta íslenskir lífeyrissjóðir.

Nánari upplýsingar

Upplýsingar veita Guðni Aðalsteinsson, forstjóri, í netfanginu gudni@reitir.is eða í síma 575 9000 og 624 0000 eða Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri í netfanginu einar@reitir.is eða í síma 575 9000 og 699 4416.

Attachments

Disclaimer & Cookie Notice

Welcome to GOLDEA services for Professionals

Before you continue, please confirm the following:

Professional advisers only

I am a professional adviser and would like to visit the GOLDEA CAPITAL for Professionals website.

Important Notice for Investors:

The services and products offered by Goldalea Capital Ltd. are intended exclusively for professional market participants as defined by applicable laws and regulations. This typically includes institutional investors, qualified investors, and high-net-worth individuals who have sufficient knowledge, experience, resources, and independence to assess the risks of trading on their own.

No Investment Advice:

The information, analyses, and market data provided are for general information purposes only and do not constitute individual investment advice. They should not be construed as a basis for investment decisions and do not take into account the specific investment objectives, financial situation, or individual needs of any recipient.

High Risks:

Trading in financial instruments is associated with significant risks and may result in the complete loss of the invested capital. Goldalea Capital Ltd. accepts no liability for losses incurred as a result of the use of the information provided or the execution of transactions.

Sole Responsibility:

The decision to invest or not to invest is solely the responsibility of the investor. Investors should obtain comprehensive information about the risks involved before making any investment decision and, if necessary, seek independent advice.

No Guarantees:

Goldalea Capital Ltd. makes no warranties or representations as to the accuracy, completeness, or timeliness of the information provided. Markets are subject to constant change, and past performance is not a reliable indicator of future results.

Regional Restrictions:

The services offered by Goldalea Capital Ltd. may not be available to all persons or in all countries. It is the responsibility of the investor to ensure that they are authorized to use the services offered.

Please note: This disclaimer is for general information purposes only and does not replace individual legal or tax advice.