REITIR: Tilkynning vegna áhrifa covid-19 faraldurs

Samkvæmt drögum að rekstraruppgjöri fyrir fyrsta ársfjórðung ársins 2020 verða rekstrartekjur Reita á fjórðungnum í góðu samræmi við áætlun eða um 2.900 m.kr.  Rekstrahagnaður tímabilsins er áætlaður á bilinu 1.890 til 1.910 m.kr. Innheimta leigutekna gekk vel yfir fjórðunginn.Viðskiptavinahópur Reita er breiður og uppistaða hans eru fjárhagslega traustir aðilar. Þegar þetta er ritað hafa um tveir þriðju hlutar leigureikninga félagsins vegna aprílmánaðar verið greiddir eða um 770 m.kr. Stöðvun ferðaþjónustu heimsins hefur hins vegar augljóslega áhrif á stöðu fjölda fyrirtækja í ferðaþjónustu og tengdum þjónustugreinum. Leigutökum, sem orðið hafa fyrir verulegum áhrifum af þessari stöðu og þar sem afleiðingar samkomubanns hafa haft áhrif á rekstur, hefur verið mætt með skilningi á aðstæðum en um þriðjungi leigugreiðslna vegna aprílmánaðar hefur verið frestað til úrvinnslu síðsumars og í haust. Eflaust mun félagið þurfa að koma með sama hætti til móts við takmarkaðan hóp rekstraraðila í maí, en vonir standa til að stuðningur hins opinbera við íslenskt atvinnulíf muni nýtast þeim sem verr standa.Tafla 1: Flokkun tekna í apríl eftir tegundum viðskiptavina:Staða Reita til þess að fást við þessar óvenjulegu aðstæður er sterk. Rekstrarafkoma félagsins á fyrsta ársfjórðungi var góð og lánaskilyrði félagsins vel innan þeirra marka sem félaginu eru sett. Sala eigna á undanförnum mánuðum og sala skuldabréfa í febrúar og byrjun mars styrktu sjóðstöðu félagsins og var hún 3.620 m.kr. í lok mars. Þá hefur félagið frestað arðgreiðslu og gert ráðstafanir til að tryggja enn frekar aðgengi að lausu fé m.a. með heimild til frestun afborgana af bankalánum og aðgangi að nýjum lánalínum, ef á þarf að halda.Stöðugt er unnið að mati og greiningu á þeim aðstæðum sem nú ríkja og áhrifum þeirra á rekstur félagsins til skemmri og lengri tíma. Það er mat Reita að einkaneysla á innanlandsmarkaði taki við sér eftir því sem ferða- og samkomutakmörkunum verður aflétt. Hins vegar verði áhrifin langvinnari í starfsemi tengdri komu erlendra ferðamanna. Félagið ætlar að þeim leigutökum fækki á næstunni sem þurfa á fyrirgreiðslu að halda og jafnframt að þegar tilkynntar aðgerðir hins opinbera við atvinnulífið hjálpi smærri og meðalstórum fyrirtækjum. Allt að einu er reiknað með að frestun leigugreiðslna aukist á meðan áhrifa faraldursins gætir, sem og umfang tapaðra tekna. Félagið vinnur að áætlunum miðað við mismunandi sviðsmyndir um það hversu langvinn og djúptæk áhrif faraldursins verða á ferðaþjónustuna og mótun viðbragða eftir því. Taki ferðaþjónustan í heiminum við sér innan árs ætla stjórnendur að áhrif stöðvunarinnar á lausafjárstöðu félagsins kalli ekki sérstaklega á frekari ráðstafanir en þegar er fyrirséð. Er þá horft til sjóðstöðu félagsins í dag og aðgengi félagsins að frekara fjármagni.Mati eigna í árshlutauppgjöri fyrsta ársfjórðungs er ekki lokið. Mikil óvissa ríkir um bæði skammtíma- og langtímaáhrif af faraldrinum og erfitt að henda reiður á hvaða forsendur matsins munu koma til með að breytast frá því sem fyrr var. Miðað við stöðu skulda í lok fyrsta ársfjórðungs, hreyfingar á eignasafninu og óbreytt eignamat er LTV áætlað um 62% í lok fjórðungsins. Helsta skilyrði fjármögnunar félagsins kveður á um að LTV fari ekki yfir 70%. Undanfarin ár hafa Reitir viðhaft varfærna nálgun í eignamati félagsins. Sú varfærni gefur borð fyrir báru og ólíklegt er að breyting í eignamati muni raska skilyrðum fjármögnunar.Reitir munu birta árshlutauppgjör fyrsta ársfjórðungs þann 11. maí nk. Þá verða frekari upplýsingar gefnar um stöðu og horfur. Félagið mun upplýsa markaðinn um fjárhags- og rekstrarstöðu þess utan útgefins fjárhagsdagatals eins og aðstæður kalla á, á meðan núverandi staða er uppi.Frekari upplýsingar veitir Guðjón Auðunsson, forstjóri.Netfang gudjon@reitir.is, sími 660 3320.


ViðhengiTilkynning frá Reitum vegna áhrifa Covid-19 faraldurs

Disclaimer & Cookie Notice

Welcome to GOLDEA services for Professionals

Before you continue, please confirm the following:

Professional advisers only

I am a professional adviser and would like to visit the GOLDEA CAPITAL for Professionals website.

Cookie Notice

We use cookies to improve your experience on our website

Information we collect about your use of Goldea Capital website

Goldea Capital website collects personal data about visitors to its website.

When someone visits our websites, we use a third party service, Google Analytics, to collect standard internet log information (such as IP address and type of browser they’re using) and details of visitor behavior patterns. We do this to allow us to keep track of the number of visitors to the various parts of the sites and understand how our website is used. We do not make any attempt to find out the identities or nature of those visiting our websites. We won’t share your information with any other organizations for marketing, market research or commercial purposes and we don’t pass on your details to other websites.

Use of cookies
Cookies are small text files that are placed on your computer or other device by websites that you visit. They are widely used to make websites work, or work more efficiently, as well as to provide information to the owners of the site.