Orkuveita Reykjavíkur: Útboð á grænum skuldabréfum 23. júní

Þriðjudaginn 23. júní 2020 verða boðin til sölu í lokuðu útboði skuldabréf í grænum skuldabréfaflokkum Orkuveitu Reykjavíkur, OR020934 GB og OR180255 GB.OR020934 GB ber fasta verðtryggða vexti og greiðir jafnar greiðslur á sex mánaða fresti með lokagjalddaga 2. september 2034.OR0180255 GB ber fasta verðtryggða vexti og greiðir jafnar greiðslur á sex mánaða fresti með lokagjalddaga 18. febrúar 2055.Áður hafa verið gefin út bréf í flokkunum að nafnvirði 3.800 m.kr. í OR020934 GB og að nafnvirði 16.111 m.kr. í OR0180255 GBÚtgáfa skuldabréfaflokkanna er í samræmi við áður samþykkta lántökuheimild Orkuveitu Reykjavíkur fyrir árið 2020.Fossar markaðir hafa umsjón með útgáfu og sölu skuldabréfanna sem og töku þeirra til viðskipta á Sustainable bond markaði Nasdaq á Íslandi.Nánari upplýsingar:Ingvar Stefánsson
framkvæmdastjóri Fjármála OR
Sími: 516-6100
Netfang: ingvar.stefansson@or.is
Matei Manolescu
Markaðsviðskipti, Fossar markaðir
Sími: 522-4008
Netfang: matei.manolescu@fossarmarkets.com