Orkuveita Reykjavíkur: Endurgreiðsla eigendalána og fyrirhuguð lántaka hjá Norræna fjárfestingarbankanum

Orkuveita Reykjavíkur (OR) hefur greitt upp víkjandi skuldabréf sem gefin voru út af eigendum félagsins árið 2011 til 15 ára. Er greiðslan í samræmi við tilkynningu OR frá 7. júlí 2020 um endurfjármögnun eigendalána. Fjárhæðin nam um 5,7 ma.kr.OR hefur átt í viðræðum við Norræna fjárfestingarbankann (NIB) um 80m USD lánasamning til 15 ára til fjármögnunar á ákveðnum umhverfisvænum verkefnum félagsins.Fjármögnunin er á lokastigi en gert er ráð fyrir undirritun á næstu vikum.Nánari upplýsingar:Ingvar Stefánsson
Framkvæmdastjóri fjármála OR
Sími: 516-6100
Netfang: ingvar.stefansson@or.is
