Origo hf. – Uppgjör á fyrri árshelming 2020 – 16% tekjuvöxtur á fyrri árshelming –

REYKJAVÍK – 26. ágúst 2020 – Origo kynnti í dag uppgjör fyrir fyrri árshelming 2020
Ágætur tekjuvöxtur var á fyrri helmingi ársins 2020 eða um 16% samanborið við sama tímabili í fyrra. Heildarhagnaður nam 371 mkr og EBITDA nam 360 mkr en tekið tillit til einskiptislaunakostnaðar vegna skipulagsbreytinga og breytinga á framkvæmdarstjórn sem er að fullu gjaldfærð á tímabilinu nam leiðrétt EBITDA 526 mkr á fyrri árshelmingi sem er 17% hækkun frá sama tímabili árið 2019.COVID-19 faraldurinn hefur haft áhrif á ýmsa þætti í starfsemi Origo. Sem dæmi hefur eftirspurn eftir fjarvinnu- og fjarfundalausnum verið mikil. Ljóst er að fyrirtæki og stofnanir eru að aðlaga starfsemi sína hratt að nýjum veruleika og nýta til þess tæknilausnir í miklum mæli. Þá hefur Origo gegnt stóru hlutverki í lausnum og búnaði fyrir COVID-19 skimun og prófanir á landamærum landsins. Þar hefur reynsla og þekking Origo á umhverfi heilbrigðisþjónustu, hugbúnaðarþróunar og samtengingu stafrænna lausna stutt við aðgerðir stjórnvalda.Á sama tíma hefur verið samdráttur hjá fyrirtækjum í ferðaþjónustu sem dregið hefur úr tekjum og afkomu í rekstrarþjónustu og sölu á ferðalausnum. Brugðist hefur við þessum aðstæðum með því að hagræða eins og kostur er og hjálpa viðskiptavinum að laga sig að breyttum aðstæðum, svo sem í formi aukinnar sjálfvirkni.Horfur Origo eru áfram góðar. Við gerum ráð fyrir ágætri eftirspurn eftir lausnum Origo en ljóst er að óvissa í efnahagslífinu getur haft áhrif á ýmsa þætti í starfsemi okkar út frá afkomu og gengi viðskiptavina félagsins.ViðhengiOrigo hf. árshlutareikningur 30.6.2020Fréttatilkynning Árshlutauppgjör Origo hf. F2 2020