Origo hf. – Kynningarfundur fyrir fjárfesta fimmtudaginn 27. ágúst nk. kl 08:30

Origo hf. birtir uppgjör annars ársfjórðungs 2020 eftir lokun markaða þann 26. ágúst næstkomandi. Kynningarfundur fyrir markaðsaðila og fjárfesta vegna uppgjörsins verður haldinn daginn eftir, fimmtudaginn 27. ágúst kl. 08:30. Á fundinum kynna stjórnendur rekstur og afkomu félagsins og svara spurningum. Kynningin fer fram í ráðstefnusal Origo á 1. hæð að Borgartúni 37. Það verður lögð áhersla á að halda tveggja metra fjarlægð á milli fundargesta og er því mikilvægt að skrá sig á fundinn svo hægt sé að halda utan um fjöldann. Einnig er boðið upp á að taka þátt í gegnum fjarfundabúnað, auk þess sem hægt er að fylgjast með netstreymi af fundinum. Skráning á fundinn fer fram hér: https://www.origo.is/fjarfestakynning/ Nánari upplýsingar veitir: Gunnar Petersen framkvæmdastjóri fjármálasviðs í síma 825-9001 eða gp@origo.is.