Nova Klúbburinn hf.: Niðurstöður aðalfundar þann 29. mars 2023
Ný stjórn Nova
Aðalfundur Nova
Aðalfundur Nova Klúbbsins hf. var haldinn í dag, miðvikudaginn, 29. mars 2023. Þetta var fyrsti aðalfundur í skráðu félagi sem eingöngu var stýrt af konum en Hrund Rudolfsdóttir flutti skýrslu stjórnar, Margrét Tryggvadóttir skemmtana- & forstjóri fór yfir árið, Svanhildur Magnúsdóttir var fundarstjóri og ritari fundar var Ásta Guðjónsdóttir.
Í stjórn félagsins voru kjörnir eftirfarandi einstaklingar:
Hrund Rudolfsdóttir
Jón Óttar Birgisson
Jóhannes Þorsteinsson
Magnús Árnason
Sigríður Olgeirsdóttir
Jóhannes, Sigríður og Magnús koma inn í stjórnina í stað Hugh Short, Kevin Payne og Tinu Pidgeon. Stjórn hefur skipt með sér verkum og var Sigríður Olgeirsdóttir kjörinn formaður stjórnar.
Jóhannes Þorsteinsson starfar í dag sem yfirmaður fjárstýringar T-Mobile í Bandaríkjunum, þar sem hann ber ábyrgð á allri fjármögnun fyrirtækisins. T-Mobile er leiðandi fyrirtæki á fjarskiptamarkaði í Ameríku.
Sigríður Olgeirsdóttir er reyndur stjórnandi í hugbúnaðar- og hátæknigeiranum.
Magnús er sjálfstæður ráðgjafi með góða reynslu á sviði markaðsmála, stafrænnar þróunar og fjarskipta.
Sjálfkjörið var í tilnefningarnefnd félagsins fyrir næsta ár, en nefndina skipa:
Margrét Kristmannsdóttir
Thelma Kristín Kvaran
Margrét Tryggvadóttir, skemmtana- & forstjóri Nova:
„Fráfarandi stjórnarmeðlimum þakka ég fyrir samstarfið um leið og við bjóðum nýja stjórnsama og skemmtilega einstaklinga velkomna í Nova liðið. Við hlökkum til samstarfsins en öflug og góð stjórn skiptir sköpum í rekstri félaga. Ný stjórn á eftir að skora á okkur í Nova liðinu, vinna þéttan takt í stefnumótun með lykilstjórnendum og klappa okkur á bakið þegar við stöndum okkur vel. Þannig mun Nova halda áfram að vaxa og dafna inn í framtíðina.
Síðasta ár var viðburðarríkt og ánægjulegt, þar sem starfsánægja í Nova liðinu var í hæstu hæðum og var Nova m.a fyrirtæki ársins í stærstu vinnustaðarannsókn á Íslandi en það er lykilinn að ánægju viðskiptavina. Viðskiptavinir Nova voru jafnframt þeir ánægðustu 14. árið í röð. Öflug uppbygging innviða átti sér stað á árinu og er Nova fyrst inn í framtíðina með snjallar lausnir til sinna viðskiptavina, en Nova býður nýjungar á borð við VoWifi, eitt íslenskra fjarskiptafyrirtækja, og Snjallöryggiskerfi með SjálfsVörn.
Nova varð 15 ára á árinu og var skráning félagsins stórt skref. Markmið okkar er að þjónusta hluthafa jafnvel og viðskiptavini okkar.“
Niðurstöður aðalfundarins má að öðru leyti sjá í meðfylgjandi fundargerð.
Nova
Nova var stofnað árið 2006 og er nú orðið eitt af stærstu og öflugustu fjarskiptafyrirtækjum landsins. Fyrirtækið á og rekur sína eigin virku innviði vítt og breitt um landið. Í Nova liðinu eru um 150 starfsmenn á höfuðborgarsvæðinu, Akureyri og Selfossi. Nova hefur frá upphafi verið í farabroddi í innleiðingu nýjustu tækni og hefur fjárfest markvisst í uppbyggingu virkra innviða í sinni eigu sem mun tryggja Nova áframhaldandi forystu á fjarskiptamarkaði. Farsíma- og netkerfi Nova nær til 98% landsmanna
Attachments