Marel: Úthlutun kauprétta

Stjórn Marel hf. ákvað þann 24. apríl 2020 að veita starfsmönnum kauprétti að allt að 6.115.000 hlutum í félaginu, þar af 2.420.000 til framkvæmdastjórnar. Kaupréttirnir verða veittir meðlimum framkvæmdastjórnar og tilteknum starfsmönnum félagsins í lykilstöðum.Kaupréttarsamningunum er ætlað að samtvinna hagsmuni starfsmanna og félagsins til lengri tíma. Skilmálar eru í samræmi við kaupréttarkerfi sem samþykkt var á aðalfundi Marel hf. þann 6. mars 2019 og í samræmi við starfskjarastefnu félagsins sem samþykkt var á aðalfundi Marel hf. þann 18. mars 2020.Meginefni kaupréttarsamninganna er eftirfarandi:Veittur er kaupréttur á hlutabréfum á grunnverðinu EUR 3,80 á hlut.1 Verðið skal leiðrétt fyrir arðgreiðslum sem kunna að verða ákveðnar frá útgáfudegi kaupréttanna.Ávinnslutími (e. vesting time) er þrjú ár frá úthlutun. Heimilt verður að nýta áunna kauprétti tvisvar á ári, í apríl og október eftir birtingu ársfjórðungsuppgjörs. Fyrsta nýtingartímabil mun hefjast eftir birtingu fyrsta ársfjórðungsuppgjörs árið 2023. Kaupréttarhafar geta frestað nýtingu á kaupréttum sínum til annars ársfjórðungs ársins 2024, þegar samningar renna út og falla þá ónýttir kaupréttir niður á sama tíma.Meðlimum framkvæmdastjórnar Marel ber að halda eftir hlutum sem nema fjárhæð hreins hagnaðar af kaupréttunum, þegar skattar hafa verið dregnir frá, þar til eftirfarandi fjárhæðarviðmiðum er náð, mælt í virði hlutafjáreignar í félaginu sem margfeldi af grunnárslaunum: forstjóri þrisvar sinnum árslaun; aðrir meðlimir framkvæmdastjórnar Marel tvisvar sinnum árslaun.Aðrir kaupréttarhafar þurfa ekki að halda eftir hlutum.Kaupréttur er aðeins gildur sé kaupréttarhafi í starfi hjá Marel (Marel hf. eða dótturfélaga þess) á nýtingardegi.Heildarfjöldi útistandandi kauprétta sem Marel hf. hefur veitt starfsmönnum sínum nemur nú 24,1 milljónum hluta, eða um 3,1% hlutafjár í félaginu, og er þá meðtalin þessi nýja úthlutun kauprétta. Heildarkostnaður félagsins vegna nýju samninganna á næstu þremur árum er áætlaður um 3,5 milljónir evra og er þá byggt á reiknilíkani Black-Scholes.Nánari upplýsingar um kauprétti sem veittir eru framkvæmdastjórn Marel:
1Kaupréttargengið er ákvarðað út frá lokagengi hlutabréfa Marel hf. á Euronext Amsterdam þann 24. apríl 2020, þ.e. EUR 3,80 á hlut.