Skip to main content

Marel lýkur kaupum á TREIF

Marel hefur gengið frá kaupum á TREIF, þýskum framleiðanda skurðtæknilausna, en tilkynnt var um viðskiptin 4. september síðastliðinn. TREIF er frábær viðbót við Marel sem styrkir vöruframboð á heildarlausnum og styður við sölu staðlaðra lausna. Þá mun alþjóðlegt sölu- og þjónustunet Marel skapa tækifæri til frekari vaxtar í þjónustutekjum með þessari viðbót.Kaupin voru gerð með hefðbundnum fyrirvörum, þ.m.t. fyrirvara um samþykki samkeppnisyfirvalda, sem hafa nú verið verið uppfylltir án athugasemda og var því gengið frá kaupunum í dag, 8. október 2020. Kaupverðið, sem byggist á heildarvirði (e. enterprise value), var greitt með 128 milljónum evra í reiðufé og 2,9 milljónum hluta í Marel.Með þessum kaupum koma saman fyrirtæki sem hvort um sig eru leiðtogar á sviði nýsköpunar og vöruþróunar og deila framtíðarsýn um umbyltingu í vinnslu matvæla. TREIF er með um 500 starfsmenn og yfir 80 milljónir evra í árstekjur (samanborið við 6.300 starfsmenn og 1.300 milljón evrur í árstekjur hjá Marel). Fyrirtækið leggur mikla áherslu á nýsköpun og leiðandi tæknilausnir, en hjá TREIF starfar fjölmennt og öflugt teymi við nýsköpun í samstarfi við trausta viðskiptavini.  Vöruframboð félaganna falla vel saman og munu kaupin einkum styrkja vöruframboð Marel á heildarlausnum í kjötiðnaði sem og öðrum iðnuðum með áherslu á aukna sjálfvirkni, matvælaöryggi og sveigjanleika í vörum fyrir neytendamarkað. Sameinuð verða fyrirtækin í sterkari stöðu til að styðja við vöxt og virðisaukningu fyrir núverandi og framtíðarviðskiptavini.Frekari upplýsingar um kaupin á TREIF, viðskiptamódel Marel og 2017-2026 vaxtarstefnu félagsins má finna á marel.com/IR
FjárfestatengslNánari upplýsingar veitir Tinna Molphy í gegnum netfangið IR@marel.com og í síma 563 8001. Um MarelMarel (NASDAQ: MAREL; AEX: MAREL) er í fararbroddi á heimsvísu í þróun og framleiðslu tækja, heildarlausna, hugbúnaðar og þjónustu fyrir matvælavinnslu á kjúklingi, kjöti og fiski. Hjá félaginu starfa um 6.300 manns í yfir 30 löndum, þar af um 720 á Íslandi. Marel velti um 1,3 milljarði evra árið 2019 en árlega fjárfestir Marel um 6% af veltu í nýsköpun og vöruþróun sem styður við aukna hagkvæmni, öryggi og sjálfbærni í matvælavinnslu. Félagið var skráð í Kauphöll Íslands árið 1992, en í júní 2019 fór fram tvíhliða skráning á hlutabréfum í félaginu í Euronext kauphöllinni í Amsterdam.Um TREIF
TREIF er fjölskyldufyrirtæki með höfuðstöðvar í Oberlahr, Þýskalandi og er leiðandi í skurðtæknilausnum í matvælaiðnaði. Árstekjur félagsins nema um 80 milljónum evra og starfsmannafjöldi er um 500. TREIF hefur lagt mikla áherslu á nýsköpun og þróun og býr yfir breiðum og traustum viðskiptavinahópi. Síðan fráfarandi eigandi og forstjóri, Uwe Reifenhäuser, tók yfir rekstur félagsins árið 1989 hefur TREIF vaxið jafnt og þétt og opnað starfsstöðvar í Evrópu, Bandaríkjunum og Kína. Viðskiptavinahópurinn er breiður og telur allt frá sérvöruverslunum til alþjóðlegra fyrirtækja í matvinnsluiðnaði, sérstaklega í kjötvörum, mjólkurvörum og bökuðum vörum. Frekari upplýsingar er að finna á heimasíðu félagsins: treif.de/en

Disclaimer & Cookie Notice

Welcome to GOLDEA services for Professionals

Before you continue, please confirm the following:

Professional advisers only

I am a professional adviser and would like to visit the GOLDEA CAPITAL for Professionals website.

Important Notice for Investors:

The services and products offered by Goldalea Capital Ltd. are intended exclusively for professional market participants as defined by applicable laws and regulations. This typically includes institutional investors, qualified investors, and high-net-worth individuals who have sufficient knowledge, experience, resources, and independence to assess the risks of trading on their own.

No Investment Advice:

The information, analyses, and market data provided are for general information purposes only and do not constitute individual investment advice. They should not be construed as a basis for investment decisions and do not take into account the specific investment objectives, financial situation, or individual needs of any recipient.

High Risks:

Trading in financial instruments is associated with significant risks and may result in the complete loss of the invested capital. Goldalea Capital Ltd. accepts no liability for losses incurred as a result of the use of the information provided or the execution of transactions.

Sole Responsibility:

The decision to invest or not to invest is solely the responsibility of the investor. Investors should obtain comprehensive information about the risks involved before making any investment decision and, if necessary, seek independent advice.

No Guarantees:

Goldalea Capital Ltd. makes no warranties or representations as to the accuracy, completeness, or timeliness of the information provided. Markets are subject to constant change, and past performance is not a reliable indicator of future results.

Regional Restrictions:

The services offered by Goldalea Capital Ltd. may not be available to all persons or in all countries. It is the responsibility of the investor to ensure that they are authorized to use the services offered.

Please note: This disclaimer is for general information purposes only and does not replace individual legal or tax advice.