Marel: Fjárhagsdagatal 2021
Marel mun halda aðalfund og birta árshluta- og ársuppgjör félagsins samkvæmt neðangreindu fjárhagsdagatali:
Fjárhagsdagatal 2021Áður birt fjárhagsdagatal fyrir 2020 er óbreytt:Birting fjárhagsupplýsinga mun eiga sér stað eftir lokun markaðar. Vinsamlegast athugið að dagsetningarnar eru birtar með fyrirvara um breytingar.Fjárfestafundir og vefvarpFjárfestum og öðrum markaðsaðilum er boðið á fjárfestafundi sem haldnir eru ársfjórðungslega. Fundirnir fara fram á ensku. Fundunum er vefvarpað beint á www.marel.com/webcast og upptökur eru aðgengilegar á www.marel.com/IR eftir fundi. Markaðsaðilum gefst einnig tækifæri til að hringja inn á fundina.FjárfestatengslNánari upplýsingar veita fjárfestatengsl Marel í gegnum netfangið IR@marel.com og í síma 563 8001.Um MarelMarel (NASDAQ: MAREL; AEX: MAREL) er í fararbroddi á heimsvísu í þróun og framleiðslu tækja, heildarlausna, hugbúnaðar og þjónustu fyrir matvælavinnslu á kjúklingi, kjöti og fiski. Hjá Marel starfa nú um 7.000 manns í yfir 30 löndum, þar af um 720 á Íslandi. Þann 8. október lauk Marel við kaupin á TREIF, þýskum framleiðanda skurðtæknilausna, með 500 starfsmenn og um 80 milljón evrur í veltu. Árið 2019, velti Marel um 1,3 milljarði evra, en árlega fjárfestir félagið um 6% af veltu í nýsköpun og vöruþróun sem styður við aukna hagkvæmni, öryggi og sjálfbærni í matvælavinnslu. Félagið var stofnað 1983, skráð í Kauphöll Íslands árið 1992, og tvíhliða skráð í Euronext kauphöllina í Amsterdam í júní 2019.
