Skip to main content

Marel 3F 2019: Góð afkoma og þjónustutekjur aldrei hærri

Marel kynnir afkomu þriðja ársfjórðungs 2019 (allar upphæðir eru í evrum)Helstu atriði 3F 2019Pantanir námu 285,0 milljónum evra (3F18: 267,7m).Tekjur námu 312,5 milljónum evra (3F18: 282,0m).EBIT* nam 44,3 milljónum evra (3F18: 40,0m), sem var 14,2% af tekjum (3F18: 14,2%).Hagnaður nam 33,4 milljónum evra (3F18: 26,7m).Hagnaður á hlut (EPS) var 4,38 evru sent (3F18: 3,94 evru sent).Handbært fé frá rekstri fyrir fjármagnsliði og skatta nam 47,7 milljónum evra (3F18: 31,6m).Skuldahlutfall (nettó skuldir/EBITDA) var x0,5 í lok september (2F19: x0,6). Markmið félagsins um fjármagnsskipan er að halda skuldahlutfalli milli x2-3 nettó skuldir/EBITDA.Pantanabókin stóð í 431,9 milljónum evra við lok annars ársfjórðungs (2F19: 459,4m og 3F18: 510,8m).*Rekstrarniðurstaða aðlöguð fyrir afskrift á óefnislegum eignum sem tengjast yfirtökum (PPA).Ítarlegri umfjöllun um rekstur og afkomu félagsins má finna í enskri útgáfu fréttatilkynningarinnar (íslenska útgáfan fjallar einungis um helstu þætti uppgjörsins, horfur, fjárfestafund og fjárhagsdagatal).Árni Oddur Þórðarson, forstjóri“Rekstur Marel gekk vel á þriðja ársfjórðungi þar sem tekjur námu 313 milljónum evra.  Tekjur og EBIT aukast um 11% á milli ára og EBIT framlegð er stöðug í 14.2%. Tekjur af þjónustu og varahlutum fara vaxandi og námu 37% af heildartekjum. Sjóðsstreymi er gott og hagnaður á hlut eykst um 11% á milli ára.    Mótteknar pantanir voru 285 milljónir evra sem er nokkuð lægra en við vonuðumst eftir. Engu að síður aukast pantanir um 7% milli ára. Aðstæður á markaði eru krefjandi fyrir matvælaframleiðendur vegna umróts á alþjóðamörkuðum. Í slíkum aðstæðum geta pantanir auðveldlega sveiflast á milli ársfjórðunga. Sameiginlegt verkefni okkar og viðskiptavina okkar er að tryggja framboð til að mæta sívaxandi eftirspurn eftir kjúklingi, kjöti og fiski á heimsvísu. Alþjóðlegt sölu- og þjónustunet ásamt framsæknu vöruframboði setur Marel í lykilstöðu.     Við tryggjum áframhaldandi vöxt með nýsköpun og markaðssókn, studda af yfirtökum og strategískum samstarfssamningum. Kaup á Cedar Creek Company munu styrkja stöðu Marel í hugbúnaðarlausnum í Eyjaálfu. Samstarf við TOMRA Food er ætlað að styrkja enn frekar okkar sterku stöðu í skynjaralausnum til að hámarka verðmæti afurða, lágmarka sóun í framleiðslu og auka matvælaöryggi.Síðast en ekki síst, þá erum við mjög spennt að taka höndum saman með Curio sem færir okkur nær því að bjóða heildarlausnir fyrir fiskvinnslu um heim allan.”Marel undirritar kaup á Curio og Cedar Creek CompanyÞann 22. október 2019 samþykkti Marel kaup á 50% hlut í Curio, framleiðanda hátækni fiskvinnsluvéla fyrir frumvinnslu hvítfisks. Marel eignast jafnframt kauprétt á eftirstandandi 50% hlut eftir fjögur ár. Með vöruframboði Curio í flökun, hausun og roðflettingu færist Marel nær því að geta boðið viðskiptavinum heildarlausnir fyrir hvítfiskvinnslu. Curio er íslenskt félag með árstekjur sem nema um 10 milljónum evra. Búist er við því að kaupin gangi formlega í gegn á fjórða ársfjórðungi 2019 að uppfylltum hefðbundnum skilyrðum. Frekari upplýsingar: https://marel.com/is/curioÞann 23. október 2019 samþykkti Marel kaup á Cedar Creek Company, áströlskum framleiðanda sem sérhæfir sig í hugbúnaðar- og vélbúnaðarlausnum fyrir kjöt-, fisk- og kjúklingavinnslu. Árstekjur félagsins eru um 3 milljónir evra. Búist er við því að kaupin gangi formlega í gegn á fjórða ársfjórðungi 2019 að uppfylltum hefðbundnum skilyrðum. Frekari upplýsingar: https://marel.com/cedarcreekHorfurMarkaðsaðstæður hafa verið einstaklega góðar á síðustu árum en eru nú meira krefjandi í ljósi umróts á heimsmörkuðum. Marel býr að góðri dreifingu tekna á milli markaða og iðnaða í gegnum alþjóðlegt sölu- og þjónustunet sitt ásamt breiðu og framsæknu vöru- og þjónustuframboði. Marel stefnir að 12% meðalvexti árlega yfir tímabilið 2017-2026 sem byggir á öflugri markaðssókn og nýsköpun, samstarfi við lykilaðila og yfirtökum á fyrirtækjum.Marel gerir ráð fyrir að almennur markaðsvöxtur nemi 4-6% til lengri tíma. Með sterkri markaðssókn og nýsköpun stefnir Marel að innri vexti umfram almennan markaðsvöxt.Gera má ráð fyrir að áframhaldandi traustur rekstur og sterkt sjóðstreymi geti stutt við 5-7% ytri meðalvöxt á ári.Marel gerir ráð fyrir að hagnaður á hlut vaxi hraðar en tekjur.Áætlaður vöxtur er háður hagsveiflum og þeim tækifærum sem eru í boði hverju sinni og því má gera ráð fyrir að hann verði því ekki línulegur. Reikna má með breytilegri afkomu á milli ársfjórðunga vegna efnahagsþróunar, sveifla í pöntunum og tímasetningu stærri verkefna.AfkomuefniÍtarlegri umfjöllun um rekstrarafkomu er að finna í enskri útgáfu fréttatilkynningar sem er í viðhengi. Sé misræmi á milli uppgjörstilkynninga félagsins á íslensku annars vegar og ensku hins vegar, skal enska útgáfan gilda þar sem tilkynningar eru þýddar af ensku yfir á íslensku.FjárfestafundurFimmtudaginn 24. október 2019 kl. 8:30 verður haldinn afkomufundur með markaðsaðilum og fjárfestum. Þar munu Árni Oddur Þórðarson forstjóri og Linda Jónsdóttir fjármálastjóri kynna afkomu félagsins og helstu atriði úr rekstri á þriðja ársfjórðungi.Afkomufundurinn verður haldinn í höfuðstöðvum félagsins að Austurhrauni 9 í Garðabæ. Boðið verður upp á morgunverð frá kl. 8:00.Fundinum verður einnig vefvarpað beint á www.marel.com/webcast og upptaka verður aðgengileg á www.marel.com/IR eftir fundinn.Markaðsaðilar geta einnig hringt inn á fundinn:•           IS: +354 800 7520
•           NL: +31 20 721 9496
•           UK: +44 333 300 9269
•           US: +1 833 526 8347
FjárhagsdagatalMarel mun birta árshluta- og ársuppgjör félagsins og halda aðalfund samkvæmt neðangreindu fjárhagsdagatali:4F 2019 – 5. febrúar 2020Aðalfundur – 18. mars 2020Birting fjárhagsupplýsinga mun eiga sér stað eftir lokun markaðar.FjárfestatengslNánari upplýsingar veita Fjárfestatengsl Marel í gegnum netfangið IR@marel.com og í síma 563 8001.Um MarelMarel (NASDAQ: MAREL; AEX: MAREL) er í fararbroddi á heimsvísu í þróun og framleiðslu tækja, heildarlausna, hugbúnaðar og þjónustu fyrir matvælavinnslu á kjúklingi, kjöti og fiski. Hjá félaginu starfa yfir 6.000 manns í yfir 30 löndum, þar af um 720 á Íslandi. Marel velti 1,2 milljarði evra árið 2018 en árlega fjárfestir Marel um 6% af veltu í nýsköpun og vöruþróun sem styður við aukna hagkvæmni, öryggi og sjálfbærni í matvælavinnslu. Félagið var skráð í Kauphöll Íslands árið 1992, en í júní 2019 fór fram tvíhliða skráning á 15% hlutabréfa í félaginu í Euronext kauphöllinni í Amsterdam.Athygli fjárfesta er vakin á eftirfarandi:Sumar staðhæfingar í þessari fréttatilkynningu kunna að vera byggðar á mati og áætlunum stjórnenda félagsins en ekki á staðreyndum sem hægt er að sannreyna við birtingu hennar. Í eðli sínu fela slíkar staðhæfingar því í sér óvissu. Vakin er athygli fjárfesta á því að margir þættir geta haft þau áhrif að rekstrarumhverfi og afkoma verði með öðrum hætti en forsendur gera ráð fyrir í þessari tilkynningu. Tilkynningin verður ekki endurskoðuð eftir birtingu hvað þetta varðar.Gögn um markaðshlutdeildYfirlýsingar um markaðshlutdeild, þar með taldar þær sem varða samkeppnisstöðu Marel, byggjast á utanaðkomandi heimildum og gögnum, svo sem gögnum frá rannsóknastofnunum, iðnaðar- og sölunefndum og hópum, ásamt mati stjórnenda Marel. Séu upplýsingar ekki tiltækar fyrir Marel kunna slíkar yfirlýsingar að vera byggðar á áætlunum og mati utanaðkomandi aðila og/eða stjórnenda. Markaðsstaða er byggð á sölutölum nema annað sé tekið fram.Sé misræmi á milli uppgjörstilkynninga félagsins á íslensku annars vegar og ensku hins vegar, skal enska útgáfan gilda þar sem tilkynningar eru þýddar af ensku yfir á íslensku.ViðhengiMarel Q3 2019 Condensed Consolidated Interim Financial Statements – EXCELMarel Q3 2019 Condensed Consolidated Interim Financial Statements_vFMarel Q3 2019 Press Release_vF

Disclaimer & Cookie Notice

Welcome to GOLDEA services for Professionals

Before you continue, please confirm the following:

Professional advisers only

I am a professional adviser and would like to visit the GOLDEA CAPITAL for Professionals website.

Important Notice for Investors:

The services and products offered by Goldalea Capital Ltd. are intended exclusively for professional market participants as defined by applicable laws and regulations. This typically includes institutional investors, qualified investors, and high-net-worth individuals who have sufficient knowledge, experience, resources, and independence to assess the risks of trading on their own.

No Investment Advice:

The information, analyses, and market data provided are for general information purposes only and do not constitute individual investment advice. They should not be construed as a basis for investment decisions and do not take into account the specific investment objectives, financial situation, or individual needs of any recipient.

High Risks:

Trading in financial instruments is associated with significant risks and may result in the complete loss of the invested capital. Goldalea Capital Ltd. accepts no liability for losses incurred as a result of the use of the information provided or the execution of transactions.

Sole Responsibility:

The decision to invest or not to invest is solely the responsibility of the investor. Investors should obtain comprehensive information about the risks involved before making any investment decision and, if necessary, seek independent advice.

No Guarantees:

Goldalea Capital Ltd. makes no warranties or representations as to the accuracy, completeness, or timeliness of the information provided. Markets are subject to constant change, and past performance is not a reliable indicator of future results.

Regional Restrictions:

The services offered by Goldalea Capital Ltd. may not be available to all persons or in all countries. It is the responsibility of the investor to ensure that they are authorized to use the services offered.

Please note: This disclaimer is for general information purposes only and does not replace individual legal or tax advice.