Lykill fjármögnun hf.: Niðurstaða víxlaútboðs

Lykill fjármögnun hefur lokið útboði á 6 mánaða víxlum í nýjum flokki LYKILL200615. Heildareftirspurn í útboðinu nam 1.520 m.kr. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði 1.220 m.kr.Víxlarnir voru seldir á 4,05% flötum vöxtum. Útgáfudagur og gjalddagi áskrifta er mánudagurinn 16. desember 2019.Fossar markaðir höfðu umsjón með útboðinu.Stefnt er að töku víxlanna til viðskipta á Nasdaq Iceland þann 16. desember 2019.Nánari upplýsingar veita:
Daði Kristjánsson, Fossar markaðir hf., dadi.kristjansson@fossarmarkets.com, s: 840 4145
Arnar Geir Sæmundsson, forstöðumaður fjárstýringar Lykils fjármögnunar hf., arnarg@lykill.is, s: 540 1700