Landsbankinn hf. tilkynnti í dag um endurkaupatilboð til eigenda skuldabréfa í flokki EUR 500.000.000 1,625% á gjalddaga árið 2021 (ISIN: XS1490640288) (þar af eru EUR 200.000.000 útistandandi) þar sem bankinn býðst til að kaupa skuldabréfin til baka gegn greiðslu reiðufjár. Endurkaupatilboðið byggir á skilmálum og skilyrðum endurkaupatilboðs (e. tender offer memorandum) dagsettu 16. febrúar 2021, þar á meðal niðurstöðu bankans í fyrirhuguðu skuldabréfaútboði. Endurkaupatilboðið miðast við fast verð sem ákvarðast af -0,45% ávöxtunarkröfu.Nánari upplýsingar um endurkaupatilboðið má finna í tilkynningu á Euronext Dublin þar sem skuldabréfin eru skráð. Að tilteknum skilyrðum uppfylltum má nálgast skilmála endurkaupatilboðs hjá umsýsluaðila endurkaupanna, Lucid Issuer Services Limited, landsbankinn@lucid-is.com.Umsjónaraðilar eru ABN AMRO, BofA Securities, Citi og Deutsche Bank.
