Lánasjóður sveitarfélaga – Niðurstaða viðbótarútgáfu í LSS150434

Lánasjóður sveitarfélaga var með skuldabréfaútboð í LSS150434 þann 17. mars 2021. Uppgjör viðskipta fer fram 19. mars 2021.Samkvæmt 1. gr. í skilmálum aðalmiðlarasamnings í tengslum við útgáfu skuldabréfa Lánasjóðs sveitarfélaga stendur aðalmiðlurum til boða að kaupa 10% af nafnverði þess sem selt var í útboðinu á meðalverði samþykktra tilboða til kl. 12 á næsta virka degi eftir að útboði lýkur. Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast kauprétt í réttu hlutfalli við það magn sem þeir hafa keypt í útboðinu. Alls bárust tilboð í LSS150434 að nafnvirði ISK 4.660.000.000 á bilinu 1,08% – 1,20%. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði ISK 1.406.000.000 þannig að 40% var tekið af tilboðum á ávöxtunarkröfunni 1,12% en öllum tilboðum á lægri ávöxtunarkröfu var tekið að fullu. Að þessu sinni óskuðu aðalmiðlarar eftir að nýta sér kauprétt fyrir viðbót í LSS150434 fyrir ISK 104.600.000 að nafnvirði á ávöxtunarkröfunni 1,12% og hefur Lánasjóðurinn ákveðið að verða við þeim óskum. Heildarmagn seldra bréfa í útboðinu í LSS150434 að meðtaldri viðbótarútgáfunni er ISK 1.510.600.000. Heildarstærð flokksins að nafnvirði fyrir útboðið var ISK 89.016.852.565 en er nú ISK 90.527.452.565.Nánari upplýsingar veitir:
Örvar Þ. Ólafsson
Sími: 515 4947
T-póstur: orvar@lanasjodur.is