Lánasjóður sveitarfélaga – Niðurstaða aðalfundar

Aðalfundur Lánasjóðs sveitarfélaga ohf. var haldinn föstudaginn 12. júní 2020 kl. 15:00 á Grand Hótel Reykjavík.Helstu niðurstöður fundarins:1. Ársreikningur 2019 lagður fram til afgreiðslu.
Aðalfundur samþykkti ársreikning félagsins vegna ársins 2019.2. Ákvörðun um greiðslu arðs
Aðalfundur samþykkti tillögu stjórnar sem hljóðaði svo: „Stjórn sjóðsins leggur til að á árinu 2020 verði ekki greiddur út arður vegna afkomu 2019 til hluthafa til að styrkja stöðu sjóðsins og tryggja vöxt eigin fjár.“3. Kosning stjórnar skv. 15 gr. samþykkta félagsins
Sjálfkjörið var í stjórn og varastjórn félagsinsAðalmenn:Kristinn Jónasson, bæjarstjóri í Snæfellsbæ, var kjörinn formaður stjórnarArna Lára Jónsdóttir, bæjarfulltrúi í ÍsafjarðarbæElliði Vignisson, bæjarstjóri í ÖlfusGuðmundur B. Guðmundsson, formaður bæjarráðs AkureyrarbæjarHelga Benediktsdóttir, skrifstofustjóri fjárstýringardeildar hjá ReykjavíkurborgVaramenn:Fannar Jónasson, bæjarstjóri í GrindavíkKaren Halldórsdóttir, bæjarfulltrúi í KópavogiKatrín Sigurjónsdóttir, sveitarstjóri DalvíkurbyggðLilja Einarsdóttir, oddviti Rangarþingi eystraÓlafur Þ. Ólafsson, sveitarstjóri Tálknafjarðarhrepps4. Kosning endurskoðanda eða endurskoðunarfyrirtækis
Aðalfundur samþykkti tillögu stjórnar sem hljóðaði svo: „Árið 2015 var PwC ráðið sem endurskoðandi Lánasjóðsins til 5 ára. Stjórn leggur til að gengið verði til samninga við PwC um áframhaldandi þjónustu, um endurskoðun á ársreikningum Lánasjóðsins, til næstu tveggja ára.“5. Tillaga stjórnar um starfskjarastefnu
Starfskjarastefna var samþykkt óbreytt.6. Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna fyrir störf þeirra
Aðalfundur samþykkti tillögu stjórnar um óbreytt stjórnarlaun7. Tillaga stjórnar um breytingar á samþykktum Lánasjóðsins
Aðalfundur samþykkti tillögu stjórnar um breytingar á samþykktum sjóðsins. Samþykktirnar með breytingum er að finna á heimasíðu Lánasjóðsins: https://www.lanasjodur.is/um-lanasjodinn/samthykktir/Önnur mál voru ekki borin upp og var fundi slitið kl. 16.08Nánari upplýsingar veitir Óttar Guðjónsson í síma 515 4949 eða ottar@lanasjodur.isViðhengi1.1 Samþykktir LS -Breytingatillaga 2020-06-12