Lánasjóður sveitarfélaga – árshlutauppgjör og kynningarfundur

Lánasjóður sveitarfélaga ohf. mun birta árshlutauppgjör sitt miðvikudaginn 19. ágúst 2020.Opinn kynningarfundur fyrir markaðsaðila verður haldinn fimmtudaginn 20. ágúst kl. 9.00. Óttar Guðjónsson framkvæmdastjóri mun kynna afkomu og efnahag sjóðsins ásamt því að svara spurningum. Fundurinn er fjarfundur og eru markaðsaðilar beðnir um að staðfesta þátttöku á fundinum með því að senda tölvupóst á ottar@lanasjodur.is.Nánari upplýsingar veitir Óttar Guðjónsson, framkvæmdastjóri, s. 515 4949.