Skip to main content

Kvika banki hf.: Afkomutilkynning fyrir fyrstu níu mánuði ársins 2020

Á stjórnarfundi þann 12. nóvember 2020 samþykktu stjórn og forstjóri árshlutareikning samstæðu Kviku banka hf. fyrir tímabilið 1. janúar 2020 til 30. september 2020.
Helstu atriði úr árshlutareikningi fyrir fyrstu níu mánuði ársins 2020Hagnaður fyrir skatta nam 1.533 milljónum krónaHagnaður eftir skatta nam 1.337 milljónum krónaArðsemi eigin fjár eftir skatta nam 11,3%Hagnaður á hlut nam 0,70 krónumHreinar rekstrartekjur námu 6.077 milljónum krónaRekstrarkostnaður nam 4.004 milljónum krónaHeildareignir námu 114,7 milljörðum krónaEigið fé samstæðunnar nam 17,8 milljörðum krónaEiginfjárhlutfall í lok september var 26,9% að teknu tilliti til arðgreiðslustefnuLausafjárþekja (LCR) var 321%Heildareignir í stýringu námu 538 milljörðum krónaStarfsmenn í fullu starfi voru 148 í lok septemberKynningarfundur fyrir markaðsaðila og hluthafa verður haldinn kl. 8:45 föstudaginn 13. nóvember. Fundurinn verður haldinn í gegnum fjarfundabúnað á vefslóðinni www.kvika.is/fjarfestaupplysingar. Meðfylgjandi er fjárfestakynning.Góð afkoma og mikill vöxtur í þóknanatekjumHagnaður Kviku banka hf. fyrir skatta á fyrstu níu mánuðum ársins 2020 nam 1.533 milljónum króna og var nokkuð yfir áætlun tímabilsins. Hagnaður eftir skatta nam 1.337  milljónum króna. Arðsemi eigin fjár á tímabilinu var 11,3% en arðsemi eigin fjár á þriðja ársfjórðungi nam 10,3%.Hreinar vaxtatekjur námu 1.328 milljónum króna og breyttust lítillega á milli ára. Hreinar þóknanatekjur námu 4.329 milljónum króna og jukust um 20% á milli ára. Fjárfestingartekjur námu 352 milljónum króna og drógust saman um 19% á milli ára. Hrein virðisbreyting var neikvæð um 228 milljónir króna og skýrist að mestu leyti af varúðarfærslum vegna COVID-19.Rekstrarkostnaður nam 4.004 milljónum króna á fyrstu níu mánuðum ársins og hækkaði um 0,3% á milli ára, sem var í samræmi við áætlanir.Sterkur efnahagsreikningurÍ lok september 2020 námu heildareignir 114,7 milljörðum króna samanborið við 105,6 milljarða króna í lok árs 2019. Útlán til viðskiptavina námu 28,7 milljörðum króna í lok september og drógust saman um 1,4 milljarða króna á tímabilinu. Lausafjárstaða bankans er mjög sterk, handbært fé og innstæður í Seðlabanka námu 28,1 milljarði króna í lok september en því til viðbótar námu ríkistryggð skuldabréf 26,5 milljörðum króna. Lausafjárhlutfall var 321% í lok september samanborið við 246% í lok árs 2019 og var langt umfram kröfur um 100% lágmarksþekju. Stefnt er að lækkun hlutfallsins á næstu mánuðum en það er töluvert umfram langtímamarkmið bankans.Eigið fé nam 17,8 milljörðum króna og var áhættuvegið eiginfjárhlutfall 26,9% að teknu tilliti til arðgreiðslustefnu bankans sem segir til um að greiða eigi út 25% af hagnaði sem arð (27,6% að teknu tilliti til hagnaðar á þriðja ársfjórðungi), samanborið við 24,1% í lok árs 2019. Var eiginfjárhlutfallið talsvert umfram 20,6% eiginfjárkröfu eftirlitsaðila, sem síðast var uppfærð þann 18. mars 2020.Afkomuáætlun hefur verið uppfærð til hækkunarAfkomuáætlun Kviku fyrir árið 2020 hefur verið uppfærð. Miðgildi spár um hagnað fyrir skatta hefur verið hækkað um 150 milljónir króna og gerir ráð fyrir að hagnaður fyrir skatta á árinu verði á bilinu 2.000 – 2.300 milljónir króna .Breyting á afkomuspá skýrist einkum af betri afkomu af eignastýringarstarfsemi, sterkri verkefnastöðu í fyrirtækjaráðgjöf og hækkun á hreinum fjárfestingartekjum.Viðræður um sameiningu Kviku banka hf. og TM hf.Þann 28. september samþykktu stjórnir Kviku banka og TM hf. að hefja viðræður um sameiningu félaganna. Gert er ráð fyrir því að hluthafar í TM hf. fái sem endurgjald fyrir hlutabréf sín 55% hlut í sameinuðu félagi miðað útgefna hluti félaganna þann 28. september. Viðræðurnar ganga vel og stefnt er að niðurstöðu á næstu vikum.Marinó Örn Tryggvason forstjóri Kviku:Rekstur bankans hefur gengið vel. Sérstaklega ánægjulegt er að sjá hvernig tekist hefur til þrátt fyrir mikla óvissu.Mig langar til að þakka starfsmönnum sérstaklega fyrir þá þrautseigju sem þeir hafa sýnt á undanförnum mánuðum. Ég er stoltur að starfa með og vera hluti af þessum samhenta hóp.Kvika er með sterkt eiginfjárhlutfall og lausafjárstaða bankans er langt fyrir ofan innri markmið bankans. Fjárhagslegur styrkleiki hefur verið mikilvægur á þessum óvissutímum. Fréttir vikunnar um að líklega styttist í bóluefni gegn Covid19 gerir mig enn bjartsýnni á framtíðina. Það eru spennandi tímar í vændum því sterk staða bankans gerir það að verkum að hann getur gegnt mikilvægu hlutverki í nauðsynlegri viðspyrnu hagkerfisins.Í gangi eru viðræður við TM um sameiningu félaganna. Viðræðurnar ganga vel og vænta má niðurstöðu á næstu vikum.Viðhengi2020-11-12 Kvika Q3 2020Kvika – Condensed Consolidated Interim Financial Statements 30.09.20

Disclaimer & Cookie Notice

Welcome to GOLDEA services for Professionals

Before you continue, please confirm the following:

Professional advisers only

I am a professional adviser and would like to visit the GOLDEA CAPITAL for Professionals website.

Important Notice for Investors:

The services and products offered by Goldalea Capital Ltd. are intended exclusively for professional market participants as defined by applicable laws and regulations. This typically includes institutional investors, qualified investors, and high-net-worth individuals who have sufficient knowledge, experience, resources, and independence to assess the risks of trading on their own.

No Investment Advice:

The information, analyses, and market data provided are for general information purposes only and do not constitute individual investment advice. They should not be construed as a basis for investment decisions and do not take into account the specific investment objectives, financial situation, or individual needs of any recipient.

High Risks:

Trading in financial instruments is associated with significant risks and may result in the complete loss of the invested capital. Goldalea Capital Ltd. accepts no liability for losses incurred as a result of the use of the information provided or the execution of transactions.

Sole Responsibility:

The decision to invest or not to invest is solely the responsibility of the investor. Investors should obtain comprehensive information about the risks involved before making any investment decision and, if necessary, seek independent advice.

No Guarantees:

Goldalea Capital Ltd. makes no warranties or representations as to the accuracy, completeness, or timeliness of the information provided. Markets are subject to constant change, and past performance is not a reliable indicator of future results.

Regional Restrictions:

The services offered by Goldalea Capital Ltd. may not be available to all persons or in all countries. It is the responsibility of the investor to ensure that they are authorized to use the services offered.

Please note: This disclaimer is for general information purposes only and does not replace individual legal or tax advice.