Kvika banki hf.: Aðalfundur 21. apríl 2021
Aðalfundur Kviku banka hf., kt. 540502-2930, verður haldinn miðvikudaginn 21. apríl 2021, kl. 16:00, á Hilton Reykjavík Nordica, 2. hæð, Suðurlandsbraut 2, 108 Reykjavík.
Á dagskrá fundarins verða eftirfarandi mál:
- Skýrsla stjórnar félagsins um starfsemi þess síðastliðið starfsár.
- Ársreikningur félagsins fyrir árið 2020 og ákvörðun um meðferð hagnaðar félagsins á reikningsárinu.
- Tillaga um að heimila félaginu að kaupa eigin hlutabréf.
- Tillaga um starfskjarastefnu félagsins.
- Tillaga stjórnar um breytingar á samþykktum félagsins.
- Kosning stjórnar og varastjórnar félagsins.
- Kosning endurskoðenda félagsins.
- Ákvörðun þóknunar til stjórnarmanna og nefndarmanna í undirnefndum stjórnar.
- Önnur mál.
Fundarstörf fara fram á íslensku. Fundargögn verða aðgengileg á heimasíðu félagsins á íslensku og ensku utan þess að ársreikningur félagsins er eingöngu aðgengilegur á ensku. Dagskrá, endanlegar tillögur, starfskjarastefna, ársreikningur félagsins og önnur fundargögn munu liggja frammi á skrifstofu félagsins að Katrínartúni 2, Reykjavík, hluthöfum til sýnis í 21 dag fyrir aðalfund. Umrædd gögn, ásamt upplýsingum um frambjóðendur til stjórnar, eru einnig birt á heimasíðu félagsins, https://www.kvika.is/fjarfestaupplysingar/hluthafafundir/.
Um frekari upplýsingar vísast til meðfylgjandi fundarboðs.
Viðhengi
- Kvika banki hf._Fundarboð á aðalfund 2021