Islandsbanki hf.: Íslandsbanki gefur út fyrstu grænu skuldabréfaútgáfu íslensks banka
Íslandsbanki hefur í dag gefið út fyrsta græna skuldabréf bankans að fjárhæð 2,7 milljarða króna til 5 ára. Um er að ræða almennt skuldabréf sem ber 3,5 % fasta vexti. Viðtökurnar voru mjög góðar og voru bréfin seld í lokuðu útboði til breiðs hóps innlendra fjárfesta.
Útgáfan er jafnframt fyrsta græna skuldabréfaútgáfa íslensks banka og er því jákvætt skref í þróun og uppbyggingu íslensks fjármálamarkaðar. Með grænni skuldabréfaútgáfu skuldbindur Íslandsbanki sig til að lána út andvirði útgáfunnar í umhverfisvæn (græn) verkefni er falla undir sjálfbæra fjármálaramma bankans er kynntur var fyrir skömmu.Stefnt er að töku skuldabréfaanna til viðskipta í Nasdaq Iceland þann 26. nóvember 2020. Skuldabréfin verða gefin út undir skuldabréfaramma Íslandsbanka í íslenskum krónum.Frekari upplýsingar má nálgast á vefsíðu bankans: https://www.islandsbanki.is/is/vara/bankinn/fjarmognun-bankansUmsjónaraðili útboðsins var verðbréfamiðlun Íslandsbanka.Nánari upplýsingar veita:Fjárfestatengsl – Margrét Lilja Hrafnkelsdóttir, ir@islandsbanki.is.Póstlisti Íslandsbanka
Ef þú vilt gerast áskrifandi að kauphallarfréttum Íslandsbanka þá vinsamlegast skráðu þig hér: https://www.islandsbanki.is/is/grein/postlisti_ir