Heimavellir munu bjóða upp á greiðsluúrræði fyrir leigutaka sem verða fyrir tímabundnum tekjumissi vegna COVID-19

Fréttatilkynning: Heimavellir hf.24. mars 2020Heimavellir hafa ákveðið að koma til móts við þá leigjendur sem lenda í erfiðleikum með að standa skil á greiðslu húsaleigu á næstu mánuðum.Fyrirkomulagið er með þeim hætti að þeir sem verða atvinnulausir, eða þurfa að taka á sig skert starfshlutfall, geta sótt um greiðslufrest á hluta húsaleigu sem jafngildir sömu krónutölulækkun og ráðstöfunartekjur leigutaka lækka vegna breytingu á atvinnuhögum hans. Greiðslufresturinn getur varað í allt að 6 mánuði og verður að hámarki 50% af húsaleigu hvers mánaðar frestað. Eftirstöðvum leigunnar verður hægt að dreifa yfir allt að 24 mánaða tímabil að 6 mánaða greiðslufrestinum liðnum. Lengd greiðslufrestarins og endurgreiðslutími leigunnar byggir á gildistíma gildandi leigusamnings á þeim tíma sem gengið er frá greiðslufrestinum.Þetta úrræði býðst öllum leigjendum sem uppfylla þau skilyrði sem verða nánar tilgreind á heimasíðu Heimavalla. Á næstu dögum mun sérstakt svæði á heimasíðu félagsins (www.heimavellir.is) opna þar sem fjallað verður nánar um úrræðið og fyrirkomulag þess ásamt því að hægt verður að sækja um greiðslufrest á leigu.