Fyrstu aðgerðir Reykjavíkurborgar til viðspyrnu vegna Covid-19

Í dag er lögð fram í borgarráði tillaga að fyrstu aðgerðum Reykjavíkurborgar til viðspyrnu vegna Covid-19. Þær efnahagslegu þrengingar sem blasa við vegna heimsfaraldurs Covid-19 munu hafa umtalsverð áhrif á rekstur og afkomu Reykjavíkurborgar eins og annarra sveitarfélaga. Gera má ráð fyrir að útsvarstekjur og aðrir mikilvægir tekjustofnar borgarinnar dragist saman í þeirri niðursveiflu sem er framundan. Á sama tíma er ljóst að Reykjavíkurborg eins og önnur sveitarfélög verða að standa við skyldur sínar gagnvart íbúum og þær geta orðið talsvert kostnaðarsamari en fyrirséð var í áætlunum sem samþykkt var í borgarstjórn í desember sl.Til grundvallar aðgerðaráætlun Reykjavíkurborgar liggur greining á mismunandi sviðsmyndum varðandi þróun efnahags- og atvinnumála og áhrif þeirra á fjármál og rekstur borgarinnar. Sviðsmyndagreiningin er liður í virkri áhættustýringu og lögð fram til að undirbúa viðbrögð borgarinnar rekstrar- og fjárhagslega við þeirri efnahagslægð sem fyrirséð er.Markmið aðgerðanna er að stytta niðursveifluna eins og kostur er, verja lífsafkomu og lífskjör allra borgarbúa, styðja við endurreisn fyrirtækja og atvinnulífs og skapa á ný fjölbreytta og blómlega framtíð í lífsgæðaborg.Sjá nánar í meðfylgjandi tillögu um aðgerðir og kynningu á sviðsmyndum og fjárhagslegri greiningu.Nánari upplýsingar veitir:
Halldóra Káradóttir, sviðsstjóri fjármála- og áhættustýringarsviðs,
halldora.karadottir@reykjavik.isViðhengi1 Tillaga að fyrstu aðgerðum Reykjavíkurborgar vegna áhrifa af Covid19_200-03-26 (003)2 Tillaga um að flýta verkefnum á vegum Reykjavíkurborgar 2020 (003)Sviðsmyndir og fjárhagsleg greining 2020-03-26_(lok) (003)