Festi hf.: Fundarboð aðalfundar 23. mars 2020

Aðalfundur Festi hf. verður haldinn mánudaginn 23. mars 2020 klukkan 10:00 í höfuðstöðvum félagsins að Dalvegi 10-14, Kópavogi.Dagskrá fundarins:Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins á liðnu starfsári.Skýrsla forstjóra og ársreikningur kynntur.Staðfesting ársreiknings fyrir síðastliðið reikningsár og tekin ákvörðun um hvernig fara skuli með hagnað félagsins.Ákvörðun tekin um greiðslu arðs vegna rekstrarársins 2019.Tilnefningarnefnd kynnir skýrslu sína og tillögur.Stjórnarkjör.Tillaga um staðfestingu á ákvörðun stjórnar um skipun tveggja einstaklinga í tilnefningarnefnd.Kjör endurskoðanda eða endurskoðunarfirma.Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna, undirnefnda stjórnar og tilnefningarnefndar.Tillaga stjórnar um breytingu á starfskjarastefnu félagsins.Tillaga stjórnar um heimild til kaupa á eigin hlutabréfum.Tillaga um heimild til stjórnar til að gefa út nýtt hlutafé til að mæta hluta kaupsamningsgreiðslna við kaup á Íslenskri Orkumiðlun ehf.Tillaga stjórnar til aðalfundar um tillögur til breytingar á samþykktum.Önnur mál löglega upp borin.Nánari upplýsingar um fundinn, dagskrá, tillögur og tengd skjöl er að finna í viðhengi.ViðhengiFesti_fundarboð_aðalfundar_2020Festi_samþykktirFesti_starfskjarastefna