Festi hf.: Endurkaupaáætlun vika 12
Í 12. viku 2020 keypti Festi alls 329.655 hluti eins og hér segir:Er um að ræða tilkynningu um kaup Festi á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun sem var tilkynnt um 2. mars 2020 í tilkynningu til Nasdaq OMX Iceland.Fyrir kaupin átti Festi 4.315.752 hluti eða 1,31% af útgefnu hlutafé. Festi á í dag 4.645.407 hluti sem samsvarar 1,41% af hlutafé félagsins og er endurkaupum lokið.Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka II við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005.Nánari upplýsingar veitir Eggert Þór Kristófersson, forstjóri Festi hf., (eggert@festi.is)