Festi hf.: Endurkaup í viku 11
Í 11. viku 2020 keypti Festi alls 2.157.876 hluti eins og hér segir:Er um að ræða tilkynningu um kaup Festi á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun sem var tilkynnt um 2. mars 2020 í tilkynningu til Nasdaq OMX Iceland.Fyrir kaupin átti Festi 3.157.876 hluti eða 0,96% af útgefnu hlutafé. Festi á í dag 4.315.752 hluti sem samsvarar 1,31% af hlutafé félagsins. Endurkaupin munu að hámarki nema 5.000.000 hlutum eða 1,5% af útgefnum hlutum í félaginu. Áætlunin er í gildi til 23. mars 2020, eða fram að aðalfundi félagsins 2020.Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka II við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005.Nánari upplýsingar veitir Eggert Þór Kristófersson, forstjóri Festi hf., (eggert@festi.is)