Eimskip birtir uppgjör þriðja ársfjórðungs 2020

Kynningarfundur 20. nóvember 2020Eimskip birtir uppgjör þriðja ársfjórðungs 2020 eftir lokun markaða fimmtudaginn 19. nóvember 2020.Eimskip býður fjárfestum og markaðsaðilum til rafræns fundar þar sem Vilhelm Már Þorsteinsson, forstjóri og Egill Örn Petersen, fjármálastjóri munu kynna uppgjör fjórðungsins. Fundurinn verður haldinn föstudaginn 20. nóvember kl. 8:30 og í ljósi aðstæðna í þjóðfélaginu verður hann eingöngu sendur út gegnum fjárfestasíðu félagsins www.eimskip.com/investors. Þar verður útbúinn sérstakur hlekkur áður en fundur hefst.Fjárfestum er velkomið að senda spurningar fyrir kl. 8:00 á föstudagsmorgun á netfangið investors@eimskip.com merkt fjárfestafundur.Upptaka verður einnig aðgengileg á fjárfestasíðunni að fundi loknum.Uppgjörsgögn verður hægt að nálgast á fjárfestasíðu Eimskips, www.eimskip.is/investors.Nánari upplýsingar veitir Edda Rut Björnsdóttir, framkvæmdastjóri Mannauðs- og samskiptasviðs í síma 825-3399 eða á investors@eimskip.is.