Eimskip birtir ársreikning 2020 og uppgjör fjórða ársfjórðungs

Eimskipafélag Íslands hf. birtir ársreikning fyrir árið 2020, uppgjör fjórða ársfjórðungs og sjálfbærniskýrslu félagsins (UFS) fyrir árið 2020 eftir lokun markaða fimmtudaginn 25. febrúar 2021.Eimskip býður fjárfestum og markaðsaðilum til rafræns fundar þar sem Vilhelm Már Þorsteinsson, forstjóri mun kynna uppgjör fjórðungsins. Fundurinn verður haldinn föstudaginn 26. febrúar kl. 8:30 og í ljósi aðstæðna í þjóðfélaginu verður hann eingöngu sendur út gegnum fjárfestasíðu félagsins www.eimskip.com/investors. Þar verður útbúinn sérstakur hlekkur áður en fundur hefst.Fjárfestum er velkomið að senda spurningar fyrir kl. 8:00 á föstudagsmorgun á netfangið investors@eimskip.com merkt fjárfestafundur.Upptaka verður einnig aðgengileg á fjárfestasíðunni að fundi loknum.Uppgjörsgögn verður hægt að nálgast á fjárfestasíðu Eimskips, www.eimskip.is/investors.Nánari upplýsingar veitir Edda Rut Björnsdóttir, framkvæmdastjóri Mannauðs- og samskiptasviðs í síma 825-3399 eða á investors@eimskip.is.