Eik fasteignafélag hf.: Framboð til stjórnar 2021
Aðalfundur Eikar fasteignafélags hf. verður haldinn rafrænt 26. apríl 2021 kl. 16:00 í samræmi við fundarboð sem birt var 30. mars 2021.
Framboðsfrestur til stjórnar Eikar fasteignafélags hf. rann út 19. apríl kl. 16:00. Eftirtaldir einstaklingar hafa gefið kost á sér til setu í stjórn félagsins:
– Bjarni Kristján Þorvarðarson
– Eyjólfur Árni Rafnsson
– Guðrún Bergsteinsdóttir
– Hersir Sigurgeirsson
– Kristín Friðgeirsdóttir
– Már Wolfgang Mixa
– Ragnheiður Harðar Harðardóttir
Stjórn hefur metið öll framboð til stjórnar gild, sbr. 63. gr. a. laga um hlutafélög nr. 2/1995. Samkvæmt samþykktum félagsins skal stjórnin skipuð fimm mönnum. Nánari upplýsingar um frambjóðendur eru í viðhengi. Tillaga tilnefningarnefndar um stjórnarmenn fylgir einnig með.
Hluthafar sem hyggjast taka þátt í aðalfundinum þurfa að skrá sig á heimasíðunni www.smartagm.com eigi síðar en kl. 16:00 sunnudaginn 25. apríl 2021.
Viðhengi
- Framboð til stjórnar Eikar fasteignafélags hf.
- Skýrsla tilnefningarnefndar