Eik fasteignafélag hf.: Breytingar á samningi um viðskiptavakt
Eik fasteignafélag hf. og Kvika banki hf. hafa með viðauka breytt samningi sínum um viðskiptavakt á hlutabréfum útgefnum af félaginu í Kauphöll Íslands, Nasdaq Iceland.
Með áorðnum breytingum kveður samningurinn á um að Kvika banki skuli dag hvern leggja fram kaup- og sölutilboð í hlutabréf útgefin af félaginu í viðskiptakerfi Kauphallar Íslands. Fjárhæð kaup- og sölutilboða viðskiptavaka skal að lágmarki nema kr. 10.000.000 að markaðsvirði, á gengi sem Kvika banki ákveður hverju sinni. Hámarksverð bil kaup- og sölutilboða skal ekki vera meira en 1,5%.
Tilboð skulu endurnýjuð eins fljótt og unnt er, þó ávallt innan 10 mínútna eftir að þeim er tekið að fullu eða þau felld niður af hálfu viðskiptavakans. Eigi Kvika banki viðskipti með bréf félagsins fyrir kr. 50.000.000 að markaðsvirði eða meira í sjálfvirkri pörun (e. „automatch“) innan dags, sem fer um veltubók viðskipavakans (eigin viðskipti bankans), falla niður skyldur um hámarksverðbil kaup- og sölutilboða innan þess dags.
Framangreint gildir frá og með 15. apríl 2021. Samningurinn er ótímabundinn og uppsegjanlegur af hálfu hvors aðila að honum með 14 daga fyrirvara.