Eik fasteignafélag hf.: Birting árshlutauppgjörs þann 28. október – Kynningarfundur 29. október

Eik fasteignafélag hf. mun birta árshlutauppgjör fyrir fyrstu níu mánuði 2020 eftir lokun markaða miðvikudaginn 28. október nk.
Rafrænn kynningarfundur verður haldinn fimmtudaginn 29. október nk. klukkan 8:30. Garðar Hannes Friðjónsson, forstjóri og Lýður H. Gunnarsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, munu kynna uppgjörið og svara spurningum að lokinni kynningu.Tengill á fundinn mun verða sendur út samhliða birtingu árshlutauppgjörsins.