Ársreikningur KLS vegna ársins 2020

KLS sjóður sem er í rekstri Stefnis hf. gaf út skuldabréf tekin til viðskipta hjá NASDAQ OMX Iceland hf. árið 2013.Hagnaður 236 þús. krónur varð á rekstri sjóðsins á árinu samkvæmt rekstrarreikningi.Hrein eign sjóðsins nam 1.802 þús. króna samkvæmt efnahagsreikningi.Ársreikningurinn var endurskoðaður af Deloitte ehf. í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla. Það er álit endurskoðanda að ársreikningurinn gefi glögga mynd af afkomu sjóðsins á árinu 2020, efnahagi hans 31. desember 2020 og breytingu á hreinni eign sjóðsins á árinu 2020, í samræmi við lög um ársreikninga.Hægt verður að nálgast ársreikning sjóðsins frá og með deginum í dag á heimasíðu Stefnis hf. www.stefnir.isNánari upplýsingar um ársreikning fagfjárfestasjóðsins KLS veitir Jóhann Möller, framkvæmdastjóri Stefnis, í síma 444 7471.Viðhengi2020 – Ársreikningur KLS 31.12.2020