Ársreikningur Jeratúns ehf. árið 2019
Ársreikningur Jeratúns ehf. fyrir árið 2019 var staðfestur af stjórn félagsins í dag, 27. mars 2020.Jeratún ehf. er einkafyrirtæki í eigu Grundarfjarðarbæjar, Helgafellssveitar, Snæfellsbæjar og Stykkishólmsbæjar og bera þau ábyrgð á skuldbindingum þess. Hlutverk félagsins er bygging og rekstur skólahúsnæðis Fjölbrautaskóla Snæfellinga í Grundarfirði. Starfsemi félagsins flokkast því undir að vera á vettvangi sveitarfélaga.Hagnaður félagsins á árinu 2019 var 35.074 þús. kr. og í lok þess var eigið fé jákvætt sem nemur 255.446 þús. kr. skv. ársreikningi. Stjórnin mun ekki leggja til við hluthafafund félagsins að hlutafé verði aukið.Stjórn félagsins vekur athygli á áritun óháðs endurskoðanda sem er með ábendingu.Lántaka félagsins er vegna fjármögnunar framkvæmda við Fjölbrautaskóla Snæfellinga. Sveitarfélögin ásamt ríkinu greiða húsaleigu sem á að standa undir afborgunum og vöxtum af lánum. Í lok ársins námu eftirstöðvar lána um 186 millj. kr. og voru eftirstöðvar í skilum. Sveitarfélögin bera hlutfallslega ábyrgð á greiðslu lánanna.Félagið er með leigusamning við Menntamálaráðuneytið og sveitarfélögin á Snæfellsnesi vegna fasteignarinnar til 31. júlí 2024. Núverandi leigugreiðslur eru 67.108 þús. kr. á ársgrundvelli og eru verðtryggðar með vísitölu neysluverðs.Jakob Björgvin Jakobsson, er stjórnarformaður Jeratúns ehf. og veitir frekari upplýsingar um starfsemi þess og stöðu.Jeratún ehf.Lykiltölur úr ársreikningum 2015-2019ViðhengiJeratún ehf 2019 kt. 501203-2030 RSK