Skip to main content

Ársreikningur Hafnarfjarðarkaupstaðar fyrir árið 2024

Gott rekstrarár að baki hjá Hafnarfjarðarbæ og fjárhagsstaðan traust

Ársreikningur Hafnarfjarðarbæjar fyrir árið 2024 var lagður fram í bæjarráði í dag 10. apríl 2025. Rekstrarafgangur fyrir A og B hluta nam 1.208 milljónum króna á árinu 2024, samanborið við 808 milljónir árið áður. Rekstrarniðurstaða fyrir fjármagnsliði nam 3.545 milljónum króna. Afgangur af rekstri A hluta nam 117 milljón króna 2024 en var 251 milljón króna árið á undan. Veltufé frá rekstri A og B hluta nam 3.734 milljónum króna og var 975 milljónum yfir áætlun. Veltufé frá rekstri svaraði til 7,6% af heildartekjum en það var 5,6% af heildartekjum árið á undan. Skuldaviðmið samstæðu Hafnarfjarðarbæjar nam 90% í árslok 2024. 

,,Grunnrekstur Hafnarfjarðarbæjar gekk mjög vel á síðasta ári þrátt fyrir heldur minni fjölgun íbúa en gert var ráð fyrir og hægari uppbyggingu m.a. vegna hárra vaxta. Fjárhagsstaða bæjarins er auk þess sterk. Veltufé frá rekstri var verulega yfir áætlunum sem styrkir getu sveitarfélagsins til að standa undir framkvæmdum og fjárskuldbindingum. Innviðafjárfestingar voru auknar verulega sem koma til með að skila sér í enn öflugri þjónustu og auknum lífsgæðum fyrir bæjarbúa. Hafnarfjarðarbær nýtur nú góðs af mikilli uppbyggingu íbúða- og atvinnuhúsnæðis á undanförnum árum sem mun styrkja tekjustofna sveitarfélagsins til framtíðar,” segir Valdimar Víðisson, bæjarstjóri.

Rekstrartekjur af A og B hluta námu 49,3 milljörðum króna á árinu 2024 og jukust um 2 milljarða króna á milli ára. Þar af jukust tekjur vegna útsvars og fasteignaskatta um 2,4 milljarða króna. Í hlutfalli við heildartekjur námu útsvartekjur 51,4% og fasteignaskattar 9,1%. Rekstrargjöld voru 43,9 milljarðar króna og jukust um 1,9 milljarða króna á milli ára. Þar af námu laun og launatengd gjöld 24,1 milljarði króna og jukust um 1,9 milljarða króna á milli ára. Hlutfall launa og launatengdra gjalda sem hlutfall af heildartekjum Hafnarfjarðarbæjar var um 48,9%. 

Fjármagnsgjöld voru 2.337 milljónum króna umfram fjármagnstekjur sem er 503 milljónum króna minna en árið áður. Fjármagnskostnaður var um 180 milljónum króna undir áætlun sem skýrist einkum af lægri verðbólgu en gert hafði verið ráð fyrir í áætlun ársins.

Rekstrarniðurstaða A og B-hluta var jákvæð um 1.208 m.kr. sem er um 658 m.kr. undir áætlun. Í því sambandi má nefna að tekjur af sölu byggingaréttar var um 2.027 milljónum króna undir því sem áætlað hafði verið fyrir árið.

Skuldaviðmið Hafnarfjarðarbæjar fór úr 82% í 90% í lok árs og er verulega undir 150% skuldaviðmiði samkvæmt reglugerð um fjárhagsleg viðmið og eftirlit með fjármálum sveitarfélaga. Skuldahlutfall fór úr 129% í 133%.

Fjárfestingar á árinu 2024 námu 8,3 milljörðum króna sem er 17% aukning milli ára. Heildareignir í lok árs námu alls 101,0 milljarði króna og jukust þær um 7,0 milljarða á árinu. Alls námu heildarskuldir og skuldbindingar sveitarfélagsins 65,7 milljörðum króna og jukust um 4,6 milljarða króna. Hjá Hafnarfjaðrarbæ nema lífeyrisskuldbindingar um 27% skulda og skuldbindinga sveitarfélagsins sem er allnokkru hærra hlutfall en hjá nágrannasveitarfélögum. 

Eigið fé nam 35,3 milljörðum króna í árslok og hækkaði um 2,5 milljarða króna á árinu. Eiginfjárhlutfall er 34,9% sem er óbreytt hlutfall frá fyrra ári.

Íbúar Hafnarfjarðar voru 31.525 hinn 1. janúar 2025 sem er fjölgun um 909 íbúa.

Attachments

Disclaimer & Cookie Notice

Welcome to GOLDEA services for Professionals

Before you continue, please confirm the following:

Professional advisers only

I am a professional adviser and would like to visit the GOLDEA CAPITAL for Professionals website.

Important Notice for Investors:

The services and products offered by Goldalea Capital Ltd. are intended exclusively for professional market participants as defined by applicable laws and regulations. This typically includes institutional investors, qualified investors, and high-net-worth individuals who have sufficient knowledge, experience, resources, and independence to assess the risks of trading on their own.

No Investment Advice:

The information, analyses, and market data provided are for general information purposes only and do not constitute individual investment advice. They should not be construed as a basis for investment decisions and do not take into account the specific investment objectives, financial situation, or individual needs of any recipient.

High Risks:

Trading in financial instruments is associated with significant risks and may result in the complete loss of the invested capital. Goldalea Capital Ltd. accepts no liability for losses incurred as a result of the use of the information provided or the execution of transactions.

Sole Responsibility:

The decision to invest or not to invest is solely the responsibility of the investor. Investors should obtain comprehensive information about the risks involved before making any investment decision and, if necessary, seek independent advice.

No Guarantees:

Goldalea Capital Ltd. makes no warranties or representations as to the accuracy, completeness, or timeliness of the information provided. Markets are subject to constant change, and past performance is not a reliable indicator of future results.

Regional Restrictions:

The services offered by Goldalea Capital Ltd. may not be available to all persons or in all countries. It is the responsibility of the investor to ensure that they are authorized to use the services offered.

Please note: This disclaimer is for general information purposes only and does not replace individual legal or tax advice.