Árshlutareikningur Hafnarfjarðarbæjar 30.06.2024 – fréttatilkynning leiðrétting (árshlutareikning vantaði í fyrri tilkynningu)
Afkoma Hafnarfjarðarbæjar umfram væntingar
Rekstrarniðurstaða samstæðu Hafnarfjarðarbæjar, A- og B-hluta, var neikvæð um 356 m.kr. á fyrri helmingi ársins 2024 en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir 718 m.kr. neikvæðri niðurstöðu. Afkoman er því 362 m.kr. betri en áætlanir gerðu ráð fyrir. Rekstur samstæðunnar fyrir afskriftir og fjármagnsliði (EBITDA) var jákvæður um 2.065 m.kr. sem er nánast á pari við áætlun. Veltufé frá rekstri nam 1.928 m.kr. í lok júní sem er 1.370 m.kr. umfram áætlun.
Rekstrarniðurstaða A-hluta Hafnarfjarðarbæjar var neikvæð um 710 m.kr. fyrstu sex mánuðina en áætlun gerði ráð fyrir 872 m.kr. neikvæðri rekstrarniðurstöðu. Afkoman er því 162 m.kr. betri en áætlanir gerðu ráð fyrir. Rekstur A-hluta fyrir afskriftir og fjármagnsliði (EBITDA) var jákvæður um 1.080 m.kr. sem er 140 m.kr. undir áætlun sem skýrist einna helst af frávikum í öðrum rekstrarkostnaði. Veltufé frá rekstri í A-hluta nam 1.006 m.kr. í lok júní sem er 658 m.kr. umfram áætlun.
Heildareignir A- og B-hluta samkvæmt efnahagsreikningi 30. júní 2024 námu 96,4 ma.kr. og skuldir og skuldbindingar 64,0 mö.kr. Eigið fé var 32,4 ma.kr. og eiginfjárhlutfall samstæðunnar 33,6%.
Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri:
„Afkoman á fyrri hluta ársins er viðunandi í því efnahagsumhverfi sem við blasir þar sem vextir og verðbólga eru verulega íþyngjandi. Það er mjög jákvætt að veltufé sé að styrkjast á milli ára og mikilvægt að það styrkist enn frekar á komandi árum.“
„Rekstrarumhverfi sveitarfélaga þyngist með hverju árinu og sífellt er verið að velta auknum útgjöldum yfir á þau. Þrátt fyrir krefjandi aðstæður er enn gert ráð fyrir hagnaði í lok árs. Hafnarfjarðarbær endurskoðaði gjaldskrár sínar í maí síðastliðnum, þegar kallað var eftir þátttöku sveitarfélaga í aðdraganda kjarasamninga, þannig að hækkun frá áramótum var aðeins 3%. Það eru miklar áskoranir framundan og verður áfram lögð áhersla á aðhald í rekstri en á sama tíma þess gætt að tryggja góða þjónustu í bæjarfélaginu.“
Árshlutareikningur Hafnarfjarðarbæjar, janúar til júní 2024, var lagður fyrir bæjarráð 19. september sl. Árshlutareikningurinn er óendurskoðaður og ókannaður og er aðgengilegur á vef Hafnarfjarðarbæjar www.hafnarfjordur.is.
Attachment