Árshlutareikningur fagfjárfestasjóðsins REG 1 árið 2020

Árshlutareikningur fagfjárfestasjóðsins REG 1 árið 2020Fagfjárfestasjóðurinn REG 1 sem er í rekstri Stefnis hf. gaf út skuldabréf tekin til viðskipta hjá NASDAQ OMX Iceland hf. árið 2013.Hagnaður var af rekstri sjóðsins að fjárhæð 120 þús. kr. á tímabilinu samkvæmt rekstrarreikningi og er hagnaðurinn færður til hækkunar á hlutdeildarskírteinum.Hrein eign sjóðsins í júnílok 2020 nam 1,8 millj. kr. samkvæmt efnahagsreikningi.Árshlutareikningurinn var kannaður af Deloitte ehf. í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla. Það er álit endurskoðanda að árshlutareikningurinn gefi glögga mynd af afkomu sjóðsins á fyrri helmingi ársins 2020, efnahagi hans 30. júní 2020 og breytingu á hreinni eign sjóðsins á fyrri helmingi ársins 2020, í samræmi við lög um ársreikninga og reglur um reikningsskil rekstrarfélaga verðbréfasjóða sem settar eru af Fjármálaeftirlitinu.Hægt verður að nálgast árshlutareikning sjóðsins frá og með deginum í dag á heimasíðu Stefnis hf. www.stefnir.isNánari upplýsingar um árshlutareikning fagfjárfestasjóðsins REG 1 veitir Jóhann Möller, framkvæmdastjóri Stefnis í síma 444 7471.
Viðhengi2020 – Árshlutareikningur REG 1 fagfjárfestasjóðs 1. janúar – 30. júní