Alma íbúðafélag hf.: Staðfesting og könnun eftirlitsaðila á sérstökum skilyrðum AL260148, AL231124 og AL260128
Staðfesting og könnun eftirlitsaðila á sérstökum skilyrðum AL260148, AL231124 og AL260128
KPMG er eftirlitsaðili skuldabréfaflokkanna AL260148, AL231124 og AL260128. Eftirlitsaðili hefur það hlutverk að kanna og staðfesta sjálfstæða útreikninga útgefanda á fjárhagslegum og sérstökum skilyrðum skuldabréfaflokkanna.
KPMG hefur nú framkvæmt könnun á útreikningi sérstakra skilyrða skuldabréfaflokkanna.
Niðurstaða könnunar KPMG er í samræmi við útreikninga útgefanda að skuldabréfaflokkarnir AL260148, AL231124 og AL260128 standast öll fjárhagsleg og sérstök skilyrði miðað við dagsetninguna 31.12.2020.
Niðurstöðu könnunarinnar má sjá hér í viðhengi.
Nánari upplýsingar veitir Sigurður Rúnar Pálsson, fjármálastjóri, í síma 848-5290 eða sigurdur@al.is
Viðhengi
- AL260148, AL231124 og AL260128 – staðfesting vegna 31.12.2020