Aðalfundur Sjóvá 12. mars 2021 – Framboð til stjórnar

Framboðsfrestur til stjórnar Sjóvá-Almennra trygginga hf. rann út þann 7. mars 2021. Eftirtaldir einstaklingar hafa gefið kost á sér til setu í stjórn á aðalfundi félagsins, sem haldinn verður föstudaginn 12. mars kl. 15:00 í fundarsölum H og I á Hilton Reykjavík, Nordica, Suðurlandsbraut 2, Reykjavík, auk þess sem gefinn verður kostur á rafrænni þátttöku á fundinum:
Í framboði til stjórnar:Björgólfur JóhannssonGuðmundur Örn GunnarssonHildur ÁrnadóttirIngi Jóhann GuðmundssonIngunn Agnes KroMár Wolfgang MixaÍ framboði sem varamenn í stjórn:Erna GísladóttirGarðar GíslasonMat stjórnar er að öll framboð séu gild sbr. 63. gr. a. hlutafélagalaga nr. 2/1995. Samkvæmt samþykktum félagsins skal stjórn skipuð fimm mönnum og tveimur varamönnum. Með því að fleiri framboð bárust ekki til varamennsku í stjórn eru frambjóðendur sem varamenn í stjórn sjálfkjörnir.Nánari upplýsingar um frambjóðendur til stjórnar er að finna í viðhengjum, auk skýrslu tilnefningarnefndar. Önnur fundargögn tengd aðalfundinum má nálgast á vefsvæði félagsins https://www.sjova.is/um-okkur/fjarfestar/adalfundur-2021/ViðhengiAðalfundur Sjóvá 2021 – Framboð til stjórnarsetuAðalfundur Sjóvá 2021 – Skýrsla tilnefningarnefndar