Skip to main content

TM hf. lýkur hlutafjárútboði

TM hf. (Auðkenni: „TM“) lauk í dag útboði á alls 93.750.000 nýjum hlutum í TM sem boðnir voru fjárfestum til áskriftar á genginu 32,0 kr. á hvern hlut. Útboðið hófst þann 9. desember síðastliðinn og lauk útboðstímabilinu í dag kl. 17:00.  Lýsing vegna útboðsins var birt þann 4. desember 2019.  Arion banki hf. var umsjónaraðili útboðsins.Í útboðinu bárust TM áskriftir fjárfesta að alls 223.802.627 nýjum hlutum;  áskrift að samtals 178.145.043 hlutum í forgangsréttarhluta útboðsins og áskrift að samtals 45.657.584 nýjum hlutum í almennum hluta útboðsins. 
                                                                                                                         
Heildarandvirði útboðsins nemur þremur milljörðum króna, en tilgangur útboðsins var að fjármagna greiðslu TM á hluta af kaupverði Lykils fjármögnunar hf., en kaupsamningur milli TM og Klakka ehf. var undirritaður þann 10. október síðastliðinn.
Í samræmi við reglur útboðsins var alls 93.750.000 nýjum hlutum úthlutað til forgangsréttarhafa en þar er um að ræða áskrift að öllum þeim nýju hlutum sem boðnir voru í útboðinu. Samkvæmt því kemur ekki til úthlutunar nýrra hluta til þeirra fjárfesta sem skráðu áskrift í almennum hluta útboðsins. Verður fjárfestum að öðru leyti tilkynnt um úthlutanir í útboðinu á morgun,  þann 13. desember.  Gjalddagi áskriftarloforða fjárfesta er 17. desember næstkomandi og er ráðgert að afhending hinna nýju hluta til fjárfesta fari fram daginn eftir, þann 18. desember.  Gert er ráð fyrir að viðskipti með hina nýju hluti hefjist á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland hf. þann 18. desember næstkomandi.Sigurður Viðarsson forstjóri TM:Það er mér mikið ánægjuefni að sjá áhuga hluthafa og annarra fjárfesta á TM, það traust sem þeir sýna stjórnendum og starfsfólki félagsins og þá tiltrú sem þeir hafa á fyrirhuguðu samstarfi TM og Lykils. Þessi skilaboð endurspeglast með skýrum hætti í niðurstöðum útboðsins og eru TM öflugt veganesti í þeirri vinnu sem er fyrir höndum við að styrkja samstæðuna enn frekar.Nánari upplýsingar veitir: Sigurður Viðarsson, forstjóri TM hf., sigurdur@tm.is, sími 515-2609

Disclaimer & Cookie Notice

Welcome to GOLDEA services for Professionals

Before you continue, please confirm the following:

Professional advisers only

I am a professional adviser and would like to visit the GOLDEA CAPITAL for Professionals website.

Important Notice for Investors:

The services and products offered by Goldalea Capital Ltd. are intended exclusively for professional market participants as defined by applicable laws and regulations. This typically includes institutional investors, qualified investors, and high-net-worth individuals who have sufficient knowledge, experience, resources, and independence to assess the risks of trading on their own.

No Investment Advice:

The information, analyses, and market data provided are for general information purposes only and do not constitute individual investment advice. They should not be construed as a basis for investment decisions and do not take into account the specific investment objectives, financial situation, or individual needs of any recipient.

High Risks:

Trading in financial instruments is associated with significant risks and may result in the complete loss of the invested capital. Goldalea Capital Ltd. accepts no liability for losses incurred as a result of the use of the information provided or the execution of transactions.

Sole Responsibility:

The decision to invest or not to invest is solely the responsibility of the investor. Investors should obtain comprehensive information about the risks involved before making any investment decision and, if necessary, seek independent advice.

No Guarantees:

Goldalea Capital Ltd. makes no warranties or representations as to the accuracy, completeness, or timeliness of the information provided. Markets are subject to constant change, and past performance is not a reliable indicator of future results.

Regional Restrictions:

The services offered by Goldalea Capital Ltd. may not be available to all persons or in all countries. It is the responsibility of the investor to ensure that they are authorized to use the services offered.

Please note: This disclaimer is for general information purposes only and does not replace individual legal or tax advice.