Skip to main content

Ársreikningur Akureyrarbæjar 2020

Þungur rekstur í samræmi við áætlun

Ársreikningar Akureyrarbæjar fyrir árið 2020 voru lagðir fram í bæjarráði í dag. Rekstur samstæðu Akureyrarbæjar var þungur á árinu en gekk í meginatriðum í samræmi við áætlun ársins og var Akureyrarbær rekinn með 1.612 millj. kr. halla. Sjóðstreymið var lakara en árið áður en þó nokkru betra en áætlun gerði ráð fyrir.

Samstæða Akureyrarbæjar, þ.e. Aðalsjóður, Fasteignir Akureyrarbæjar, Eignasjóður gatna  og Umhverfismiðstöð ásamt fyrirtækjum í eigu bæjarins, s.s. Félagslegar íbúðir, Strætisvagnar Akureyrar, Hafnasamlag Norðurlands, Norðurorka og Öldrunarheimilin, var rekin með 1.612 millj. kr. halla. Rekstur samstæðu Akureyrarbæjar var óviðunandi en rekstrarniðurstaða ársins var í samræmi við fjárhagsáætlun sem gerði ráð fyrir 1.603 millj. kr. neikvæðri niðurstöðu. Rekstrarniðurstaða samstæðunnar fyrir fjármagnsliði og tekjuskatt var neikvæð um 27 millj. kr. en áætlun hafði gert ráð fyrir 18 millj. kr. rekstrarhalla.

Samkvæmt yfirliti um sjóðstreymi nam veltufé frá rekstri 2.312 millj. kr. sem var 380 millj. kr. hærra en áætlað var. Sambærileg fjárhæð árið áður var 2.974 millj. kr. Handbært fé frá rekstri nam 2.264 millj. kr. Fjárfestingahreyfingar námu samtals nettó 3.926 millj. kr. en fjármögnunarhreyfingar námu samtals nettó 2.493 millj. kr. Afborgun langtímalána nam 841 millj. kr. en ný langtímalán voru 3.391 millj. kr. Hækkun á handbæru fé á árinu nam 831 millj. kr. og var handbært fé samstæðunnar í árslok 2.512 millj. kr. Veltufé frá rekstri árið 2020 í hlutfalli við tekjur nam 8,37% í samstæðunni og 4,40% í A-hluta. Árið áður voru hlutföllin 10,9% í samstæðunni og 7,0% í A-hluta.

Heildarlaunagreiðslur án launatengdra gjalda og hækkunar lífeyrisskuldbindinga hjá samstæðunni voru 13.194. millj. kr. Fjöldi stöðugilda var að meðaltali 1.631 sem er fjölgun um 32 stöðugildi frá árinu áður. Laun og launatengd gjöld samstæðunnar í hlutfalli við rekstrartekjur þess voru 63,9%. Annar rekstrarkostnaður var 29,0% af rekstrartekjum. Skatttekjur og framlög úr Jöfnunarsjóði  sveitarfélaga voru 876 þús. kr. á hvern íbúa en tekjur voru samtals 1.437 þús. kr. á hvern íbúa. Árið 2019 voru skatttekjurnar 839 þús. kr. á hvern íbúa og heildartekjurnar 1.428 þús. kr. á hvern íbúa.

Niðurstaða rekstrar A-hluta var neikvæð um 1.634 millj. kr. en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir neikvæðri niðurstöðu um 1.835 millj. kr.

Samkvæmt efnahagsreikningi voru eignir sveitarfélagsins í árslok 2020 bókfærðar á 59.403 millj. kr. en þar af voru veltufjármunir 5.708 millj. kr. Skuldir sveitarfélagsins með lífeyrisskuldbindingum námu samkvæmt efnahagsreikningi 34.341 millj. kr. en þar af voru skammtímaskuldir 4.639 millj. kr. 

Þrátt fyrir slakt ár í rekstri er fjárhagur Akureyrarbæjar traustur og nam skuldaviðmið samstæðunnar í árslok 85% samkvæmt reglum Eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga en það var 73% árið áður. Skuldaviðmið í A-hluta var 62% í árslok en var 55% árið áður.

Veltufjárhlutfallið var 1,23 í árslok 2020 en var 1,15 árið áður. Bókfært eigið fé nam 25.063 millj. kr. í árslok en var 26.434 millj. kr. í árslok árið áður. Eiginfjárhlutfall var 42% af heildarfjármagni en var 47% árið áður.

Samkvæmt sveitarstjórnarlögum skal fjalla um ársreikninginn á tveimur fundum í sveitarstjórn og verður hann til umfjöllunar í bæjarstjórn Akureyrar 20. apríl og 4. maí nk.

Ársreikningurinn er settur fram samkvæmt lögum um reikningsskil sveitarfélaga. Starfseminni er skipt upp í tvo hluta, A-hluta annars vegar og B-hluta hins vegar. Til A-hluta telst starfsemi sem að hluta eða öllu leyti er fjármögnuð með skatttekjum. Til B-hluta teljast fjárhagslega sjálfstæð fyrirtæki sem að hálfu eða að meirihluta eru í eigu sveitarfélagsins en rekstur þeirra er að stofni til fjármagnaður með þjónustutekjum. 

Akureyri, 15. apríl 2021

Nánari upplýsingar veitir Dan Brynjarsson, sviðsstjóri fjársýslusviðs, í síma 460 1000.

Viðhengi

  • Samstæða Akureyrarbæjar fyrir fund í bæjarráði 15. apríl 2021

Disclaimer & Cookie Notice

Welcome to GOLDEA services for Professionals

Before you continue, please confirm the following:

Professional advisers only

I am a professional adviser and would like to visit the GOLDEA CAPITAL for Professionals website.

Important Notice for Investors:

The services and products offered by Goldalea Capital Ltd. are intended exclusively for professional market participants as defined by applicable laws and regulations. This typically includes institutional investors, qualified investors, and high-net-worth individuals who have sufficient knowledge, experience, resources, and independence to assess the risks of trading on their own.

No Investment Advice:

The information, analyses, and market data provided are for general information purposes only and do not constitute individual investment advice. They should not be construed as a basis for investment decisions and do not take into account the specific investment objectives, financial situation, or individual needs of any recipient.

High Risks:

Trading in financial instruments is associated with significant risks and may result in the complete loss of the invested capital. Goldalea Capital Ltd. accepts no liability for losses incurred as a result of the use of the information provided or the execution of transactions.

Sole Responsibility:

The decision to invest or not to invest is solely the responsibility of the investor. Investors should obtain comprehensive information about the risks involved before making any investment decision and, if necessary, seek independent advice.

No Guarantees:

Goldalea Capital Ltd. makes no warranties or representations as to the accuracy, completeness, or timeliness of the information provided. Markets are subject to constant change, and past performance is not a reliable indicator of future results.

Regional Restrictions:

The services offered by Goldalea Capital Ltd. may not be available to all persons or in all countries. It is the responsibility of the investor to ensure that they are authorized to use the services offered.

Please note: This disclaimer is for general information purposes only and does not replace individual legal or tax advice.