VÍS: Samsett hlutfall og ávöxtun fjáreigna í febrúar 2021
Samsett hlutfall* í febrúar 2021 var 102,2% og það sem af er ári 103,1%.
VÍS greiddi viðskiptavinum sínum rúma tvo milljarða króna í tjónabætur** í febrúar og hefur greitt viðskiptavinum sínum tæplega 3,1 milljarð króna í tjónabætur það sem af er ári.
Ávöxtun fjárfestingaeigna í febrúar var 2,9% og ávöxtun frá áramótum til loka febrúar var 3,7%.
Tjónakostnaður í febrúar var í takt við áætlanir félagsins. Endurtryggingakostnaður fellur ekki jafnt til á árinu og er hár í febrúar sem skýrir að mestu leyti hátt samsett hlutfall í mánuðinum. Spá félagsins um samsett hlutfall fyrir árið 2021 er óbreytt, eða 96,8%.
Þess ber að geta að ekki verður send tilkynning um samsett hlutfall fyrir marsmánuð heldur fjórðunginn í heild sinni í næsta uppgjöri. Uppgjör fyrsta ársfjórðungs verður birt 29. apríl 2021.
*Samsett hlutfall er tjónakostnaður, endurtryggingakostnaður og rekstrarkostnaður af vátryggingastarfsemi sem hlutfall af iðgjöldum tímabilsins samkvæmt leiðbeinandi tilmælum Seðlabanka Íslands, fjármálaeftirlits nr. 1/2020.
**Hafa skal í huga að tjónakostnaður tryggingafélaga getur sveiflast á milli mánaða.
Nánari upplýsingar veitir Erla Tryggvadóttir, samskiptastjóri VÍS, í síma 660-5260 eða með tölvupósti erlat@vis.is