Sýn hf.: Framkomin framboð – fyrirkomulag aðalfundar

Eftirtalin gefa kost á sér til stjórnar, varastjórnar og tilnefningarnefndar Sýnar á aðalfundi, sem haldinn verður föstudaginn 19. mars 2021 kl. 15:00.Framboð til aðalstjórnar:
* Hjörleifur Pálsson
* Tanya Zharov
* Sigríður Vala Halldórsdóttir
* Petrea Ingileif Guðmundsdóttir
* Páll GíslasonFramboð til varastjórnar:
* Óli Rúnar Jónsson
* Þyri Dröfn KonráðsdóttirFramboðsfrestur er nú útrunninn og hefur stjórn félagsins staðfest lögmæti framboðanna. Í samþykktum Sýnar hf. kemur fram að fimm skipa stjórn félagsins og tveir sitja í varastjórn. Verður því sjálfkjörið í báðum tilvikum. Nánari upplýsingar um frambjóðendur er að finna í skýrslu tilnefningarnefndar, sem birt var með aðalfundarboði þann 25. febrúar sl.Framboð til tilnefningarnefndar:
Í samræmi við starfsreglur stjórnar og starfsreglur tilnefningarnefndar gefst hluthöfum jafnframt tækifæri á að kjósa tvo af þremur í tilnefningarnefnd. Þriðji meðlimur í tilnefningarnefnd er tilnefndur af stjórn félagsins.
Framboð til tilnefningarnefndar:
* Ragnheiður S. Dagsdóttir
* Þröstur Olaf SigurjónssonÞar sem einungis tvö framboð til tilnefningarnefndar bárust innan framboðsfrests verða þeir nefndarmenn sem kosnir eru af aðalfundi félagsins sjálfkjörnir.Fyrirkomulag aðalfundarLíkt og getið var um í aðalfundarboði þann 25. febrúar og 5. mars sl. þá verður aðalfundur Sýnar hf. haldinn í aðalstöðvum félagsins að Suðarlandsbraut 8, Reykjavík, föstudaginn 19. mars kl. 15:00. Jafnframt er gefinn kostur á rafrænni þátttöku á fundinum, án þess að hluthafar séu viðstaddir á fundarstað, í gegnum aðalfundakerfi Lumi AGM. Rafræn þátttaka mun því jafngilda mætingu á fundinn og veita þátttöku í honum að öðru leyti.Hluthafar eða umboðsmenn hluthafa sem hafa hug á að sækja fundinn, hvort sem þeir ætla að mæta á fundarstað eða taka þátt í fundinum með rafrænum hætti, þurfa að skrá sig til að nálgast aðgangsupplýsingar á vefsvæðinu www.smartagm.com eigi síðar en kl. 15:00 þann 18. mars nk. eða sólarhring fyrir fundardag, þar sem ekki er hægt að tryggja aðgang að fundinum berist skráning eftir þann tíma.Í ljósi samkomutakmarkana eru þeir hluthafar sem hyggjast mæta á fundinn á fundarstað beðnir um að láta vita um mætingu á fundinn við fyrsta tækifæri með því að senda skilaboð á adalfundur2021@syn.is svo hægt sé að áætla þann fjölda sem mætir.Nánari leiðbeiningar um skráningu á aðalfundinn og rafræna þátttöku og atkvæðagreiðslu er hægt að finna á vefsvæði félagsins: syn.is/fjarfestatengsl/adalfundur. Þar er jafnframt að finna önnur fundargögn og frekari upplýsingar tengdar aðalfundinum.