Félagsbústaðir – fjárhagsáætlun 2020 og til næstu 5 ára
Stjórn Félagsbústaða hf. samþykkti á fundi sínum 5. desember 2019 fjárhagsáætlun félagsins fyrir árið 2020. Fjárhagsáætlunin byggir á 9 mánaða fjárhagsuppgjöri félagsins og útgönguspá 2019.Helstu atriði í fjárhagsætlun fyrir árið 2020 eru:Áætlað er að íbúðum félagsins fjölgi um 144.Áætlað er að fjárfestingakostnaður nemi 4.733 mkr.Áætlað er að 34% fjárfestingakostnaðar verði aflað með stofnframlögum og 66% með lánsfé.Stefnt er að áframhaldandi útgáfu félaglegra skuldabréfa til að standa undir fjárfestingakostnaði.Keyptar verða íbúðir í nýbyggingum í kjölfar kaupréttarsamninga, á almennum fasteignamarkaði og byggðir íbúðakjarnar.Áætlað er að rekstrartekjur nemi 4.895 mkr.Áætlað er að rekstrargjöld nemi 2.611 mkr.Áætlað er að greiðslubyrði lána nemi 2.122 mkr.Áætlað er að handbært fé í lok árs nemi 615 mkr.Rekstur félagsins er sjálfbær á tímabilinu og handbært fé frá rekstri nægir til að greiða afborganir af núverandi og nýjum skuldum félagsins.Áætlað er að eiginfjárhlutfall verði tæp 47% í lok árs.Meðfylgjandi er áætlun 2020 og fimm ára áætlun 2020 – 2024.Nánari upplýsingar veitir:Sigrún Árnadóttir, framkvæmdastjóri, sigrun@felagsbustadir.is sími 520 1500ViðhengiFjárhagsáætlun Félagsbústaða 2020 (2)Greinargerð 5 ára fjárhagsáætlun 2019-2024